Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Blaðsíða 41
Líf að þessu loknu
leiki sér að helgum minjum þjóðarinnar“.30 Líkt og gerst hafði 1946 með
bein Jónasar Hallgrímssonar hafði helgileikurinn snúist upp í farsa, kjör-
inn efnivið fyrir gamankviðlinga í Speglinum:
Hingað þeir fluttu heim á frón
Hallgrímsson skáld í stássi.
Arason tóku aftur Jón,
almenning við í trássi.
Gjörir nú aukast græðgi í bein,
- guð vort bevari hauður -
Anskoti er hart að heita skáld
og haf’ ekki næði dauður.31
Heimamenn á Hólum virðast hafa tekið við sér í framhaldi af mál-
flutningi Jónasar Jónssonar frá Hriflu. Meirihluti Hólanefndar sendi
Eysteini Jónssyni símskeyti fáum dögum eftir þingumræðurnar þar
sem skorað var á ráðherrann að vinna að því að beinum og munum úr
Hóladómkirkju yrði skilað norður „svo fljott sem vid verdur komid og
eigi sidar en fyrir afhjupun munnisvarda Jons Arasonar 7. nov 1950“.32
Ríkisstjórnin fór þó varlega í sakirnar, líklega minnug martraðarinnar
í kringum bein Jónasar Hallgrímssonar. Til er minnismiði úr dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu dagsettur 14. desember 1949, skömmu eftir að
Eysteinn Jónsson lét af ráðherraembætti, þar sem fram kemur að hann
og fleiri aðilar hafi „talið réttast að beinin yrðu flutt í kyrrþey til Hóla
og komið þar í jörð aftur, og biskupi yrði falið að gangast í það við Landa-
kotsbiskup og mun þetta hafa verið rætt við biskup.“33 En það var ekki
fyrr en í lok júlí 1950, tveimur vikum áður en minnisvarðinn á Hólum
var formlega vígður, að Hermann Jónasson, sem þá gegndi embætti land-
búnaðarráðherra, settist niður á skrifstofu sinni og skrifaði uppkast að
bréfi til Sigurgeirs Sigurðssonar þar sem hann fól biskupi að taka „bein
[innskot á spássíu:] sem ýmsir ætla að séu bein — sem talið er að séu
[innskoti lýkur] Jóns Arasonar og sona hans“ í sína vörslu og sjá um
flutning þeirra til Hóla, í tæka tíð fyrir hátíðarhöldin.34 Rötuðu þau loks
aftur norður eftir þrjátíu og tveggja ára dvöl í kaupstaðnum.
4
Fáum dögum eftir heimsóknina í Panþeonhofið rakst ég inn á sýningu
á Signubökkum þar sem mátti sjá verk ólíkra listamanna. í litlum,
myrkum sal horfði ég á brot úr myndbandi sem lýsti kvöldstund í heima-
TMM 2005 • 3
39