Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 55

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 55
Einum bent en öðrum kennt umr haldi af því að bækur eigi að vera svo fullar af merkingu að ekki þurfi að leita til annarra heimilda um efnið nema sérstaklega standi á (bls. 201). í þessu er innra röksamhengi ef við trúum því að manneskjurnar skiptist í tvo hópa: annars vegar þá sem vita og skrifa bækur og hins vegar þá sem ekki vita en lesa bækur og stefna að því að komast inn í hóp þeirra sem vita. í eyrum flestra nútímamanna held ég hins vegar að það hljóti að hljóma skringilega að bækur eigi að vera svo mettaðar af merkingu að hjá lesandanum vakni engar spurningar aðrar en þær sem svarað er í bókinni. Flestir vilja væntanlega að það sem þeir skrifa veki spurningar og fái fólk til þess að leita nýrrar merkingar og lesa fleiri bækur og ritgerðir. Ef haldið hefði verið í þá „reglu“ að hver bók segði allan sannleikann væru bækurnar líka miklu færri en þær eru í dag því hver bók hefði þá afgreitt það mál sem hún fjallaði um. Það er eins og fram er komið óleysanlegur vandi allra texta hvort upplýsingamagnið í þeim er rétt eða rangt. Höfundurinn verður að taka afstöðu til þess og reyna að vera sjálfum sér samkvæmur. Þá eru nokkrar líkur til þess að ritverk hans rati til lesenda sem eru honum samdóma. Þór- bergur Þórðarson virðist í ritgerð sinni gefa sér að til sé eitthvert tiltekið upplýsingamagn sem sé rétt fyrir alla. Ef ritstjórnarstefnu hans hefði verið fylgt við gerð Hornstrendingabókar hefði það á köflum haft hræðilegar afleiðingar fyrir ritið og gengið þvert á viðfangsefni þess og byggingu. Ég nefni enn eitt dæmi um skalla sem Þórbergur tekur úr bók Þórleifs: Þorskurinn sem veiddist, var saltaður til sölu, en steinbítur og lúða hert til mat- ar, auk þorskhausanna, sem allir voru hirtir. (51-52) Hér vill Þórbergur fá samanburð við önnur útróðrarpláss og vinnu- brögð innan þeirra vébanda. Hann heimtar úttekt á því hvernig var saltað og hvernig var hert og hvort ekki hafi veiðst aðrar fisktegundir og spyr sérstaklega um ýsu í því sambandi. Sú gagnrýni sem stílmeistarinn lætur sér hér sæma er nokkuð sem menn eiga hvorki að bjóða sjálfum sér né öðrum. Það er satt að segja ekkert að því hjá Þórleifi Bjarnasyni að segja í bók sinni að þorskur hafi verið saltaður, lúða og steinbítur hert og þorskhausar hirtir. Spurningu Þórbergs um það hvort ekki hafi veiðst nein ýsa mætti svara með annarri spurningu og segja: Hvers vegna spyr maðurinn ekki um skötusel? Veiddist eitthvað af honum? Hvað með þá alkunnu fiska: slétthala, snarphala og stinglax? Hafi ekkert veiðst af þeim hvernig stóð þá á því? Hafi enginn kannast við fiskinn snarphala hver er þá skýringin á þeirri fáfræði? Þannig mætti lengi spyrja. TMM 2005 • 3 53
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.