Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Page 78
Menningarvettvangurinn
Ritstjórahjónin prófa hengirúm fanga í gamla fangahúsinu Hyde Park Barracks
í Sydney. Myndina tók Sigurlaug Magnúsdóttir.
Annað áfall var að átta sig á hvað landið er stórt - enda heimsálfa. Læknarnir
fljúgandi í Northern Territory hafa í bækistöð sinni geysistórt landakort og af
skömmum sínum hafa þeir teiknað Evrópulöndin inn í sýslur Ástralíu til að sýna
hvað þau eru óttalega smá miðað við flæmi hennar. Norðursýslan ein rúmar all-
ar Bretlandseyjar og vel það og Þýskaland hvílir þægilega í New South Wales!
Ástríðufullir menningarferðamenn eiga svolítið bágt í Ástralíu. í Grikk-
landi lítur maður varla við menjum sem eru yngri en tvö þúsund ára, en þó að
Ástralía sé jarðfræðilega eitthvert elsta land í heimi þá eru þar engar menjar
eldri en rúmlega tvö hundruð ára eða frá því eftir að Evrópubúar lögðu álfuna
undir sig. Söfn komu því ekki á óvart nema að einu leyti. Á listasöfnum, eink-
um í Melbourne og höfuðborginni Canberra, varð okkur starsýnt á áhrifamik-
il málverk, innsetningar og höggmyndir frumbyggja álfunnar sem eru ólík öllu
öðru sem við höfðum séð á ævinni. Okkur virtist þar og víðar sem Ástralir vilji
biðjast fyrirgefningar á ómannúðlegri meðferð sinni á þessu fólki.
Ekki þótti okkur leikhús- eða tónlistarlíf verulega blómlegt þótt hávetur
væri, en þrjár leiksýningar sáum við, tvær í Sydney og eina í Melbourne sem
reyndist þó gestasýning frá Sydney. Hið fyrsta sáum við í stærsta leiklistarsaln-
um (af fjórum) í óperuhúsinu mikla í Sydney (þar er líka stór konsertsalur auk
óperusalarins sjálfs). Þetta var nýtt ástralskt leikrit eftir Hannie Rayson, Tveir
bræður eða Two Brothers, hápólitískt verk um afstöðu Ástrala til innflytjenda
af öðrum kynþætti en hvítum. Höfundur byggir það óbeint á hörmulegu atviki
sem varð 19. október 2001 þegar bátur sökk undan 353 flóttamönnum ekki
76
TMM 2005 • 3