Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Blaðsíða 84
Myndlist
Jón Proppé
Breidd í stað samnefnara
Um myndlist á Listahátíð í Reykjavík
I.
Þetta árið var Listahátíð í Reykjavík helguð myndlist að mun stærri hluta en
nokkurn tíma áður og er það liður í því að nú skal halda listahátíð árlega en
ekki bara annað hvert ár eins og annars hefur verið gert frá 1970. Gallupkönn-
un var gerð svo kanna mætti hug almennings til þess að fjölga svo hátíðunum
og reyndust næstum tveir þriðju hlutar þjóðarinnar fagna því að fá hátíð á
hverju ári. Um 13,5 prósent aðspurðra voru reyndar alfarið andvíg þessu nýja
fyrirkomulagi en rök þeirra hafa ekki dugað til að draga úr ráðamönnum.
Listahátíð var haldin þótt ártalið væri oddatala og úr varð stærsta myndlistar-
uppákoma sem hefur verið ráðist í hér á landi þótt nóg hafi verið líka af tónlist,
leiksýningum og dansi, að ógleymdum sirkus á hafnarbakkanum.
Myndlistarhátíðin varð svo umfangsmikil og stór öll í sniðum að jafnvel
þeir sem að henni unnu stóðu agndofa þegar hulunni var svipt af öllu saman
helgina 15. og 16. maí að viðstöddum ótal erlendum gestum sem allir lofuðu
framtakið. Stemmningin var ótrúleg þegar gestirnir streymdu milli opnana
enda þurfti tvo daga til að fara yfir allt þó ekki væri nema á hundavaði. Það var
hátíðarstemmning og hvergi slegið af heldur gestir fluttir í rútum milli sýninga
og síðan í flugvélum kringum landið til að skoða enn fleiri sýningar á ísafirði,
Akureyri, Eiðum, Seyðisfirði, undir Eyjafjöllum og í Vestmannaeyjum. Þetta
var ólíkt nokkru sem við höfum upplifað áður á íslandi og einna líkast því að
koma á opnanir stórhátíða erlendis. í kjölfarið var líka fjallað um hátíðina í
fjölmiðlum um allan heim og hún jafnvel talin með helstu viðburðum ársins
í heimslistinni, ein þeirra sýninga sem sannir áhugamenn um samtímalist
mættu ekki láta fram hjá sér fara þetta árið.
Hátíðin var reyndar í tveimur hlutum. Annars vegar var gríðarmikil sýning
á verkum Dieters Roth sem fyllti Hafnarhúsið, Listasafn íslands og sýning-
arrými Orkuveitunnar, hins vegar fjöldi smærri sýninga undir yfirskriftinni
„Tími rými tilvera". Sýningum Dieters stjórnaði Björn sonur hans sem starfaði
náið með föður sínum og hefur unnið ötullega að því að sýna verk hans um
82
TMM 2005 • 3