Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 86

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 86
Myndlist Þó verður að segjast að standardinn á öðrum sýningum á hátíðinni í sumar var ansi hár, jafnvel þótt miðað sé við stóra viðburði í útlöndum og jafnvel þótt flestir yngri listamenn hljóti að líða fyrir samanburðinn við Dieter Roth. Hér yrði allt of langt að telja til alla sem sýndu, en nöfn flestra erlendra þátttakenda hafa þeir þekkt sem fylgjast vel með í samtímalistinni; hætt er þó við að aðrir hafi átt erfitt með að átta sig á samhenginu eða ráða í sum verkin. Það er enda svo með stórar samsýningar að framlag hvers og eins er aðeins sýnishorn af verki hans og engu er hægt að gera almennileg skil. Hafa slíkar sýningar verið gagnrýndar mikið fyrir þetta hin síðari ár, samt fjölgar stórsýningum ár frá ári eins og sjónvarpsrásunum og tímaritunum: Við sjáum sífellt minni brot af sífellt meira efni. II. Um eldri útlendingana á hátíðinni - On Kawara (f. 1933), John Latham (f. 1921), Lawrence Weiner (f. 1942) og félagana Peter Fischli (f. 1952) og David Weiss (f. 1946) - má lesa í listasögubókum og þurfa þeir ekki mikillar kynn- ingar við. Sumir hinna yngri hafa líka unnið sér það nafn að við þekkjum og skiljum hugmyndir þeirra og vinnubrögð; til dæmis þau Matthew Barney (f. 1967), Elke Krystufek (f. 1970), Carsten Höller (f. 1961), John Bock (f. 1965) og Thomas Hirschorn (f. 1957). Af þeim sem eftir standa vöktu sumir áhuga og aðrir ekki eins og gengur en sérstaklega var þó áhugavert að sjá sterk verk frá ungum listamönnum frá löndunum sem áður voru austan járntjaldsins og mætti óhikað stefna á frekari sýningar hér á samtímalist þaðan. Um tugur íslenskra listamanna tók þátt í sýningarhaldinu og eru Kristján Guðmundsson og Hreinn Friðfinnsson þeirra elstir, fæddir 1941 og 1943, en Elín Hansdóttir yngst, fædd 1980 og útskrifuð fyrir aðeins tveimur árum úr Listaháskóla íslands. Auk þeirra mátti sjá sýningar eða verk eftir þau Harald Jónsson (f. 1961), Önnu Líndal (f. 1957), Ragnar Kjartansson (f. 1976), Gabríelu Friðriksdóttur (f. 1971), Heklu Dögg Jónsdóttur (f. 1969), Finnboga Pétursson (f. 1959), Margréti Blöndal (f. 1970) og Ólaf Árna Ólafsson (f. 1973) sem sýndi líkt og iðulega í samstarfi við Libiu Pérez de Siles de Castro. Loks mátti sjá verk eftir Ólaf Elíasson (f. 1967) bæði í Gallerí 101 og í Viðey, en þótt Ólafur sé fædd- ur í Kaupmannahöfn og búi nú í Berlín hefur hann haldið sambandi við Island og átt mikinn þátt í því að styrkja tengsl íslands við alþjóðlegar samtímalistir. Þetta er vel frambærilegur hópur enda hafa listamennirnir flestir sýnt mikið og víða og standast þar þokkalega samanburð við erlendu þátttakendurna. Þó mætti hæglega velja úr íslenskum listamönnum í nokkra svona hópa og er það til marks um styrk myndlistarinnar hér síðustu árin. Eins og kunnugir geta lesið úr þessari upptalningu var enginn eiginlegur samnefnari með listamönnunum eða verkum þeirra. Fremur virðist hafa ver- ið stefnt að því að hafa sem mesta breidd í sýningunum og láta hverjum eftir að skýra sitt mál. Er þetta mjög í takt við það sem nú tíðkast í alþjóðlegum samsýningum. 84 TMM 2005 • 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.