Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 126

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 126
Tónlist gangi ekki heldur upp; þá sé verið að afskræma vilja tónskáldsins. Adorno mælti því með að hlusta einfaldlega á upptökurnar í hátölurunum heima. Þá myndi ekkert trufla; þannig væri hægt að ná beinu sambandi við hjarta tón- listarinnar. Túlka má þessi orð Adornos þannig að í kjarna tónlistarinnar sé einhver merking óháð þeim tíma og umhverfi sem tónlistin er sprottin úr. Og þá má spyrja hvort það sé ekki einmitt það sem gerir suma tónlist að sameiginlegum menningararfi mannkyns. Að hún hafi - í sinni hreinustu mynd - merkingu að einhverju leyti óháða þeim tíma og umhverfi sem hún er sprottin úr. Mikilvægi tónlistarhátíðarinnar { þessu ljósi má segja að slagorðið Sígild tónlist í sögulegu umhverfi, sem er yfirskrift tónlistarhátíðarinnar í Reykholti, missi marks. Vissulega er verið að segja sannleikann, en sígild tónlist þarfnast ekki sögulegs umhverfis. Þó hún sé þýsk, frönsk eða baltnesk þá er merking hennar óháð tilteknu umhverfi. Samt myndi ég vilja sjá betri tengingu á milli tónlistarinnar og staðarins sjálfs. Ekki í þeim skilningi að einhver önnur tónlist þurfi að hljóma í Reyk- holti, heldur þarf að útskýra betur fyrir tónleikagestum að menningarstarfið í Reykholti hafi alltaf verið samofið evrópskum menningarstraumum. Kannski væri hægt að koma því á framfæri í tónleikaskránum; lesefnið sem tónleika- gestir fá afhent á tónleikum er oft býsna fátæklegt. Þar er venjulega fróðleikur um verkin á dagskránni og flytjendur, en sjaldnast er hann settur í stærra sam- hengi. Tónleikaskrár eru þó varla nægilega stór vettvangur til að koma þessu á framfæri, svo hér með auglýsi ég eftir góðum hugmyndum! Þar sem tónlistarhátíðin í Reykholti er ekki bundin við Island, heldur er alþjóðleg tónlistarhátíð, þá má segja að hún sé fyllilega í anda staðarins sam- kvæmt því sem fram hefur komið í þessari grein. Steinunn Birna Ragnarsdóttir, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, hefur haft lag á að fá færustu tónlistarmenn erlendis frá til að leika á hátíðinni og það er ekki aðeins íslenskum tónlistar- unnendum ómetanlegt heldur gríðarleg hvatning fyrir hérlent tónlistarfólk. Ástæðuna fyrir gróskunni í tónlistarlífinu hér, sem er hreint ótrúleg þegar haft er í huga hve frumstæð við vorum fyrir rúmri öld, má ekki síst rekja til erlendra tónlistarmanna sem hingað fluttust á fyrri hluta 20. aldarinnar. Þess- ir menn, dr. Franz Mixa, dr. Victor Urbancic, dr. Róbert Abraham, dr. Heinz Edelstein og fleiri, höfðu gríðarleg áhrif á vöxt íslensks tónlistarlífs og það er ekki síst þeim að þakka að við eigum núna afbragðs sinfóníuhljómsveit, fær- ustu einleikara og einsöngvara, og heimsfrægt tónlistarfólk á borð við Björk Guðmundsdóttur og Sigurrós. Þessir einstaklingar spruttu ekki fram sisvona heldur hafa þeir þurft að sækja sér menntun á sviði tónlistar. Ef færir tónlist- armenn hefðu ekki sest hér að, og ef ótalmargir íslenskir tónlistarnemendur hefðu ekki sótt nám í bestu erlendu tónlistarháskólum sem völ er á, væri ekki mikil tónlistarmenning á fslandi. Við værum enn á villimannastiginu. Alþjóð- leg tónlistarhátíð í Reykholti er því ekki aðeins viðeigandi fyrir þetta mikla 124 TMM 2005 • 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.