Heimsmynd - 01.08.1994, Page 33

Heimsmynd - 01.08.1994, Page 33
aö velta þessum bíl, því hann er mjög stöðugur í akstri. Næst er að stilla upp keilum með jöfnu millibLli og fara í svig á milli þeirra. Þá finn ég aftur eins og í brautarakstiinum að í kröppum beygjum leggur bíllinn dekkið undir sig. En við skulum ekki gleyma því að þetta er jeppi, ekki fólks- bíll, og því ekki hægt að ætlast til sams- konar aksturseiginleika að þessu leyt- inu. Næst er að reynabremsuhæfnina. Eg keyri á 60 km hraða og bremsa á fyrir- fram ákveðnum stað. Til að fullstoppa þarf ég 12,5 metra en til að fullstoppa með því að draga öll hjól þarf ég 17 metra. Því segi ég bremsumar góðar. Loks, áður en ég fer heim, ætla ég að skipta um dekk. Kemst með engii fyrir- höfn að tjakknum sem er skorðaður inn í hliðina á farangursrýminu og losa varadekkið auðveldlega. Felgumiðjan losnar eins og ekkert sé, en þegar ég ætla að losa ræmar kemur babb í bátinn. Ég kem felgulyklinum með engu móti upp á ræmar, sama hvað ég reyni. Gefst upp, pakka öllu saman og þakka min- um sæla fyiir að ekki hafi sprungið hjá mér í alvörunni. Seinna fæ ég svo skýringu á þessu hjá umboðinu. Það er nefnilega búið að breyta smávegis eintakinu sem ég er að prófa. Bæði búið að hækka þetta eintak af bílnum örlítið og skipta um dekk og felgur. Slíkar breytingar geta raskað aksturseiginleikum bílsins frá því sem prýðir upprunalegt eintak og kannski hefur þessi smábreyting hjá umboðinu eitthvað með það að gera að mér þótti billinn dálítið leggja undir sig dekkin í beygjunum. Dagur 3 Núei'gaman Núna er farið eftir malarvegum í sveit- ina og nú verð ég hrifin. Bíllinn stein- liggur á mölinni, er þýður, rásfastur og fjöðrunin er hrein unun. Veghljóðin heyrast lítið sem ekkert og það er hrein- lega gaman að keyra á malarvegi í þess- um bíl. Hann kemst l£ka allt sem meðal íslendingurinn þarf að komast, þótt há- fjallafólk myndi sjálfsagt kalla hann slyddujeppa. En í ferðir út á land, skíða- ferðir, veiðiferðir, útilegur og þess hátt- ar er þetta tilvalinn bíll og hefur það í plús að hafa allt til að bera sem prýðir góðan innanbæjarbíl. Ég get nefnt nokkra plúsa til viðbótar; konur í mín- um stærðarflokki þurfa ekki koll til að klifra upp í hann, það er ekkert mál að skipta úr afturdrifi í framdrif og svo framarlega sem hraðamæliiinn sýnir 40 km þá stundina rennur gírstöngin ljúf- lega og fyiirhafnarlaust í fjórhjóladrifið. Dagur4 Basl með þvottakúst í dag þríf ég jeppann eftir sveitaferðina og veitir ekki af. Þvæ hann hátt og lágt, en lendi í bölvuðu basli með þvottakúst- inn hjá varadekkinu á afturhleranum. Dekkið er nefnilega boltað á hlerann og því er ekki hægt að þvo þar í kring með venjulegum þvottakústi. Þetta er galli sem býður heim hættunni á lakk- skemmdum, nema að fólk sé þeim mim snyrtilegra og passi upp á að þiífa svæð- ið með svampi. Hins vegar er stór kostur að afturhlerinn opnast út til hliðar, en ekki upp í loft. Innandyra er gott að komast að öllu með venjulegum ryk- sugustút og það næst vel úr teppunum. Farangursrýmið er nokkuð gott þegar 5 farþegar eru í bílnum og ég er hrifin af því auðvelda kerfi sem er á hlutunum ef maður þarf að leggja sætisbökin nið- ur aftur í og þess vegna velta setunni upp líka til að stórauka farangurspláss. En auðvitað voru öll fimm sætin á sín- um stað þegar ég mátaði að vanda Sil- verkross-barnavagn aftur í og þurfti bara að leggja niður skerminn og hand- fangið. Og Hagkaupspokarnir sex sem fylgdu helgarinnkaupunum fóru fjórir til hliðar við vagninn og tveir ofan í hann. Hins vegar snarminnkaði farang- ursrýmið niður í nánast ekki neitt þegar öll sætin 7 voru notuð undir farþega, en að eiga möguleika á slíkum farþega- fjölda í jeppa sem er þó ekki stærri um sig en Nissan Terrano n er afskaplega stór plús. Það fór líka ótrúlega vel um alla farþegana sjö, sem kom mér nokk- uð á óvart, því jeppinn virkar ekki svo stór þegar maður horfir á hann. En hann leynir heldur betur á sér. NISSAN TERRANOII Tækniupplýsingar Vélarstærö 2,4 I 4 cyl. 12 ventla, bein innspýting Hestöfl 124 Hröóun 0-100 km/klst. 14,0 sek. Bensíntankur 80 I Bensíntegund 95 okt. Bensíneyösla i blönduðum akstri 13,3 Farangursrými 830 kg Eigin þyngd 1.750 kg Hámarksþyngd 2.580 kg (Bíll-bensín-farþegar-farangur) Bíllengd 4,58 metrar Bílbreidd án spegla 1,73 metrar Staðgreiðsluverð á mismunandi útgáfum bílsins NISSAN TERRAN0 II SGX 5d/2,4L/4WD kr. 2.758.000 Nissan Terrano II LX 3d/2,4L/4WD. kr. 2.388.000 Nissan Terrano II SLX 5d/2,4L/4WD kr. 2.638.000 Staðalbúnaður: Sjálfvirkar driflokur aö framan. 75% driflæsing á afturöxli. Rafdrifnar rúður. Samlæsing á hurðum. Hiti í sætum. Snúningsliraðamælir. Hæðastilling á bílstjórasetu. Mjóbaksstuðningur sætum. Lokað geymsluhólf á milli framsæta. Topplúga. Þokuljós að framan. Aukabúnaður: Álfelgur. Brettakantar. Grjótgrind að framan. Toppgrind. Hlífar á Ijós. Stigbretti.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.