Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 15
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
87
Stjarni er lítill en skrefmikill á brokk-
inu og heillaði eigandann samstundis.
Hann var settur í tamningu og hún gekk
nokkuð vel en ljóst var að hann var
ofurviljugur. Hann varð fljótlega upp-
áhaldsreiðhestur húsbóndans og fer
áfram á yfirferðartölti og brokki. Það
er greinilegt af öllu hans atferli að hann
býr yfir góðri náttúrulegri greind auk
dýrmætrar reynslu úr uppvextinum.
Fljótlega eftir að Stjarni kom í Víði-
dalinn í Reykjavík var ljóst að hann
lét þá eldri í hesthúsinu ekki ráða yfir
sér og var um vorið kominn ofarlega í
virðingarröðinni í gerðinu. Þótt hann
sé minnstur geldinganna og hefur, þar
til nú, alltaf verið fremur grannur þá er
hann svo ákveðinn þegar hann ógnar
öðrum hestum að þeir hörfa svo til
alltaf. Þegar hann kom í sumarhagann í
Kjósina fyrsta vorið voru þar fyrir eldri
hestar, þar á meðal lítill 21 vetra hestur,
Litli Bleikur (4. mynd), sem hafði verið
efstur í virðingarröðinni í hópi 30 hesta í
mörg ár. Hann ætlaði ekki að láta Stjarna
ráða en fljótlega varð jafnræði á milli
þeirra, og hélst það næstu tvö árin þar til
Litli Bleikur var felldur. Stjarni er frekur
þegar fólk gefur brauð eða annað góð-
gæti og fæst hrossin þora nálægt honum.
Hann heldur sig meira með yngri hryss-
unum en vinatengsl við geldinga virð-
ast ekki sterk. Hann hræðist engan og á
það til að leggjast flatur inni í miðjum
hópnum í þröngu gerði á ferðalögum.
Hann virðist hugsa um hópinn eins og
stóðhestur gerir því hann er ekki hress
með að vera tekinn frá hópnum og
hneggjar þá í sífellu. Það var erfitt að
finna stíufélaga sem hann hélt ekki úti
í horni en fyrir sex árum eignuðumst
við sex vetra hryssu sem hann leyfði
að éta með sér. Hún er ljúf í viðmóti og
tengdist fljótlega geldingum í húsinu en
er neðarlega í virðingarröð hryssnanna.
Hún hefur löngum haldið sig nálægt
Stjarna og hann leyfir henni það. Hún
hefur hag af því, svo sem þegar verið er
að gefa hrossunum.
SAGAN AF STJARNA
stjarNi heitir geldiNgur sem fyrri
höfundur eignaðist fyrir 12 árum, þá
fjögurra vetra. Hann ólst upp í Land-
eyjunum. Hann var geltur tveggja vetra
og hafði þá verið í stóru stóði þar sem
tveir fullorðnir stóðhestar réðu ríkjum,
hvor með sinn hryssuhóp, og einn ungur
graðhestur var að mynda sinn hóp. Auk
þessa voru í stóðinu þrír ungir geldingar
og tveir graðir tveggja vetra folar.
Stjarni 16 vetra. Vel haldinn eftir útigöngu yfir veturinn og gott sumar. – Stjarni 16 years old.
Ljósm./Photo: Hrefna Sigurjónsdóttir 2019.