Náttúrufræðingurinn - 2019, Side 39
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
111
Norðurgosbeltinu. Syðri hluti þeirra
liggur í sprungusveimum Öskju og
Fremrináma, en miðhluti þeirra og
mestur nyrðri hlutinn liggur utan
sprungusveima sem virkir hafa verið á
nútíma (2. mynd).16
Tvö eða þrjú nútímahraun hafa
runnið í Jökulsárgljúfrum og við þau (2.
og 4. mynd). Þetta eru Stóravítishraun
og Hljóðaklettahraun, sem runnu fyrir
um 11–12 þúsund árum,15 og Sveinahraun,
sem rann fyrir um 11 þúsund árum.20
Stóravítishraun liggur að hluta undir
Hljóðaklettahrauni og því er ljóst að það
er eilítið eldra.15 Gossprunga Sveina-
hrauns er ein sú lengsta sem myndast
hefur á Íslandi á nútíma. Nær hún frá
Austari-Skógarmannafjöllum í suðri, þar
sem hún gengur undir yngri hraun, og
norður á Öxarfjarðarheiði, sem eru alls
um 75 kílómetrar. Gossprungan er slitr-
ótt og hafa margir stórir og smáir hraun-
flákar myndast á henni, stærstur þeirra
Kerlingarhraun á Öxarfjarðarheiði.15,20
Nýlega hefur komið í ljós að öskulag
frá Öskju, sem kallast Skolli (einnig
Askja-S), myndaðist að öllum líkindum
í sömu umbrotahrinu og Sveinahraun.20
Gossprunga Sveinahrauns sker Jök-
ulsárgljúfur við Hafragil, og hefur hraun
runnið frá henni niður eftir Jökulsár-
gljúfrum, eða dal sem var forveri gljúfr-
anna (2. mynd).15 Eyjan í Vesturdal hefur
ýmist verið talin hluti af Sveinahrauni15
eða Hljóðaklettahrauni,21 og hefur þá
verið álitið að eldgos hafi átt sér stað í
Hljóðaklettum (4. mynd).
Jökulhlaup hafa myndað og mótað
Jökulsárgljúfur í gegnum tíðina.22 Þetta
eru jökulhlaup ýmissar stærðar, allt frá
minniháttar hlaupum upp í hlaup sem
kölluð hafa verið „hamfarahlaup“.23,24
Líklegt er að slík hlaup eigi sér stað í
tengslum við eldsumbrot undir jökli, eða
tæmingu jökullóna.23,25 Skiptar skoðanir
eru um það hversu oft slík stórhlaup hafa
átt sér stað. Líkast til hefur það gerst
oftar en einu sinni eftir að jökla leysti
3. mynd. A) Undir Rauðhólum má finna sams konar hraunmyndanir og þær sem finnast í
Hljóðaklettum, við Gloppu og víðar í Jökulsárgljúfrum. Myndin er tekin austan Jökulsár á Fjöll-
um (sem sést á myndinni). Jökuláin hefur rofið töluvert af Hljóðaklettum og Rauðhólum. B) Horft
af Rauðhólum yfir Hljóðakletta. – A) The lava formations which are found under Rauðhólar are
of the same type as in Hljóðaklettar, in and near Gloppa and at more places in Jökulsárgljúfur.
The photo is taken east of the river Jökulsá á Fjöllum (seen in the picture). The river has eroded
a significant part of Hljóðaklettar and Rauðhólar. B) View from Rauðhólar, over Hljóðaklettar.
Ljósm./Photos: Ásta Rut Hjartardóttir.
Hljóðaklettar Rauðhólar