Náttúrufræðingurinn - 2019, Síða 49
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
121
en hrossagaukur felur sig.37 Árferði
getur ráðið miklu um varpárangur
mófugla og það verður að hafa í huga
þegar talning fer fram á ungatíma, því
varpárangur hefur áhrif á sýnileika.38
Þegar fjöldi í talningum er túlkaður
yfir í stofnstærð þarf einnig að hafa var-
ann á. Yfirleitt er markmiðið með taln-
ingu að meta breytingar á varpstofni og
í því skyni leggja teljarar stundum mat
á atferli fugla, hvort þeir sýna óðalsat-
ferli, eru með hreiður eða unga, eða
gefa stöðu sína í varpi til kynna á annan
hátt. Þetta getur þó verið snúið (1. tafla),
meðal annars vegna þess að afföll á
hreiðrum mófugla eru almennt mikil
og stór hluti stofnsins að vori og sumri
eru fuglar sem hafa misst undan sér og
sýna takmarkað óðalsatferli.39 Þá geta
kynjahlutföll í mófuglastofnum verið
bjöguð, eins og sést hefur hjá jaðrakan
þar sem karlfuglar með óðalsatferli eru
mun fleiri en verpandi pör, einkum á
verri búsvæðum.40 Líklega er öruggast
að halda ágiskunum um stöðu fugla í
lágmarki þegar markmiðið er að meta
einfaldar stofnbreytingar, þótt sjálfsagt
sé að skrá atferli, en gefa fremur upp
fjölda fullorðinna fugla en fjölda para
eða aðrar einingar sem velta á ágisk-
unum um stöðu.41 Af ofangreindu má
vera ljóst að breytileiki í viðveru og
sýnileika mófugla í tíma og rúmi er það
mikill að mælingar á stofnþéttleika með
stökum heimsóknum verða í besta falli
mat með talsverðri skekkju. Það er því
að ýmsu að hyggja þegar á að kreista
stofnstærðarvísitölu út úr mófuglataln-
ingu. Margir þættir hafa áhrif á það
hversu margir fuglar sjást á talningar-
punktum og erfitt er að leiðrétta fyrir
þeim öllum. Því er nauðsynlegt að reyna
að staðla talningu sem best hvað varðar
tíma og talningartækni.
SKIPULAG OG UPP-
BYGGING TALNINGA
Þegar talningar og vöktun eru skipu-
lögð er mikilvægt að taka tillit til eðlis
stofna og búsvæðanna sem þeir nota.
Rannsóknir hafa sýnt að þegar telja
skal fugla úr stofnum sem sýna meiri
breytileika í fjölda milli staða en milli
tímabila er betra að beita kröftunum til
að telja víðar og verr en að telja betur
á færri stöðum.42 Íslenskir mófuglar
eru einkum vaðfuglar sem eru flestir
langlífir og mjög átthagatryggir.43 Gæði
búsvæða þeirra eru enn fremur mjög
mismunandi.44,45 Því má gera ráð fyrir
að betra mat fáist á stofnbreytingar
ef átakið fer fremur í að telja á sem
flestum stöðum en að telja betur á færri
stöðum.42 Á svipaðan hátt skiptir eðli
búsvæða miklu þegar verið er að skipu-
leggja vöktunarmælingar. Stofnar dýra
eru yfirleitt samsettir úr staðbundnum
undirstofnum á misgóðum búsvæðum.46
Á betri búsvæðum eru lífslíkur oftast
meiri og æxlunarárangur betri en á
verri búsvæðum. Fækkun í stofni virðist
oft eiga rót að rekja til breytinga á verri
búsvæðum, meðan undirstofnar á betri
búsvæðum eru stöðugri. Mynstrið er oft
öfugt þegar fjölgar í stofnum, fuglum
fjölgar á verri búsvæðum en breytingar á
góðu búsvæðunum eru hægari.44,47,48 Því
er mikilvægt að velja talningarpunkta af
handahófi þegar vöktunarverkefni eru
skipulögð þannig að þeir endurspegli
sem best raunverulega dreifingu gæða
á búsvæðum þess stofns sem á að vakta.
Þegar frekar er talið í betri búsvæðum,
sem getur verið freistandi, er hætta á að
niðurstaða talninganna leiði til vanmats
á stofnbreytingum. Þá er vænlegt að telja
sem víðast og nauðsynlegt getur reynst
að draga úr talningarátaki á hverjum
stað. Takmarkað átak á hverjum stað þarf
ekki að skapa vanda því oft er mjög sterk
jákvæð fylgni milli þéttleika og þess hve
víða einstaklingar finnast. Slík mynstur
finnast hjá fjölbreyttum hópum lífvera.49
Stofnstærð getur bæði endurspeglast
í þéttleika og dreifingu einstaklinga. Í
stærri stofnum finnast einstaklingar
oft bæði á fleiri stöðum og eru í meiri
þéttleika þar sem þeir finnast. Í minni
stofnum er mynstrið oft öfugt, einstak-
1. tafla. Samsetning mófuglastofna með hliðsjón af talningum. Í mófuglastofnum er fullorðinn varpfugl í mismunandi varpfasa, geld-
fugl og fleygir ungar. Á vettvangi getur verið erfitt að greina í hvaða fasa tiltekinn fugl er. – Composition of breeding wader populations
with regard to censuses. Populations consist of mature adults at different stages of breeding, immature birds and fledged juveniles.
Determining the status of individual birds in the field can be challenging.
Flokkur
Category
Fasi og atferli
Status and behaviour
Fullorðnir með óðalsatferli
Adults with territorial behaviour
Yfirleitt karlfuglar sem verja óðul og stunda söngflug. Kvenfuglar sumra tegunda taka þátt í óðalsvörnum.
Kynjahlutföll geta verið ójöfn. / Usually males defending territories and exhibiting territorial behaviour.
Females of some species contribute to territory defence. Sex ratios can be skewed.
Fullorðnir með hreiður
Adults with nest
Fuglar tegunda sem fela hreiður liggja oft fast á og er misjafnt hvort hinn fuglinn er heima. Sýnileiki er oft
lítill á þessum tíma. / Species which hide nests often incubate tightly and mates often feed off territory.
Detectability can be low during this stage.
Fullorðnir með unga
Adults with chicks
Sýnileiki flestra tegunda eykst á þessum tíma og varnaratferli er sterkt. Hámarksfjöldi næst oft í í talningum
á ungatíma. / Detectability of most species (excluding Snipe) increases during this stage and maximum
numbers are often recorded.
Fullorðnir sem hafa misst hreiður eða unga
Adults which have lost nest/chicks
Óðalsatferli virðist minnka tímabundið þegar fuglar missa undan sér þar til þeir verpa aftur en dofnar smám
saman ef þeir eru hættir. / Territorial behaviour and detectability decreases temporarily until birds re-nest,
or dies out if breeding attempts have been aborted.
Geldfuglar
Immatures
Ársgamlir fuglar sem heimsækja varpsvæði en fara halloka í samkeppni og sýna ekki óðalsatferli. Óþekkt
er hversu algengt þetta er á Íslandi. / Second calendar year (+) birds which visit breeding grounds but are
unable to compete and usually do not show territorial behaviour. It is unknown whether this occurs or how
common it is in Iceland.
Fleygir ungar
Fledged juveniles
Fleygir ungar frá vorinu blandast í staðbundna stofna en varla er von á þeim fyrr en um miðjan júní. Auð-
þekktir á búningi ef að er gáð hjá flestum tegundum vaðfugla. / Fledged juveniles from the year can be
expected from mid June, easily identified in most species of waders.