Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 65
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
137
5. mynd. Uppfok ryks á Mýrdalssandi í nágrenni Blautukvíslar. Myndin er tekin
úr sjálfvirkri myndavél í Hafursey. Í miklum stormum fýkur ryk einnig upp af
sandsvæðunum í nágrenni flæðnanna og það á við þegar þessi mynd er tekin.
– Dust emissions at the Mýrdalssandur dust hot-spot. Photo from surveil-
lance camera above the sand-field. Ljósm./Photo: Landbúnaðarháskóli Íslands.
er mun meira áberandi þar sem jökulár
hafa borið fram efni frá virkum eld-
fjöllum undir jökli, svo sem á vatnasviði
Bárðarbungu, Grímsvatna og Kötlu.
Korn sem koma beint frá meginupp-
sprettunum eru iðulega mjög óregluleg
með hvössum hornum, en korn sem
verða fyrir síendurteknu foki rúnnast
smám saman.
TÍÐNI RYKSTORMA OG
MAGN ÁFOKSEFNA
Miklir rykstormar á meginlöndunum
geta komið af stað meira en milljón
tonna af ryki.38 Mat á heildarmagni upp-
foks og rykefna í heiminum er mjög á
reiki en yfirleitt er það talið nema 500–
5.000 milljónum tonna.2,39 Stærsti hluti
ryksins kemur frá norðanverðri Afríku,
ekki síst frá Bodélé-lægðinni í Tsjad.40
Önnur mikilvirk uppfokssvæði eru til
dæmis í Mongólíu,41 við Aralvatnið
(uppþornuð svæði),42 og í Ástralíu.38,43
Áhugi á uppfoki ryks á Íslandi hefur
farið ört vaxandi eftir að ljóst varð
hversu mikið það er, og að landið er
jafnvel í hópi virkustu rykuppspretta
jarðar.14,18,25,36,44
Pavla Dagsson-Waldhauserová og
samstarfsfólk24,28 rannsökuðu tíðni
rykatburða á landinu og byggðist
rannsóknin á því að meta skyggni á
mönnuðum veðurstöðvum vítt um
landið. Áður hafði Engelstaedter unnið
svipaða rannsókn á veðurathugunum
með minna en 1 km skyggni frá átta
veðurstöðvum.39 Samkvæmt þessum
rannsóknum valda um 135 rykatburðir
á Íslandi árlega minnkuðu skyggni á
veðurstöðvum.24,28 Stundum stendur
fok undan hvassri norðanátt beint á
haf út frá söndum á Suðurlandi án þess
að skerða skyggni á veðurstöðvum og
því eru þetta lágmarkstölur. Auk þess
á fjöldi rykatburða sér stað fjarri veð-
urstöðvum og koma þeir því ekki fram
í veðurfarsgögnum, ekki síst á Dyngju-
sandi, Mælifellssandi, í Vonarskarði og
við Eiríksjökul. Af framansögðu er ljóst
að fjöldi rykatburða á Íslandi er gríðar-
legur. Lýsingar á skyggni gefa einnig til
kynna styrk fokefna í andrúmslofti því
að samhengi er á milli skyggnis í km og
styrks rykefna í µg/m3. Lítið skyggni (<1
km) vegna ryks mælist í um 5% tilfella, í
mjög öflugum rykveðrum.
Þremur aðferðum hefur verið beitt til
að meta magn rykefna sem fýkur upp á
landinu. Í fyrsta lagi hefur magnið verið
áætlað út frá jarðvegssniðum. Þau voru
notuð til að búa til sérstakt áfokskort þar
sem einnig var tekið tillit til veðurfars-
þátta og fjarlægðar frá helstu fokupp-
sprettum (1. mynd).45 Í öðru lagi hefur
verið byggt á tíðni og stærð rykatburða
í ofangreindum rannsóknum Pövlu