Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Qupperneq 90
1955
88 —
Búðardals. Heilsufar bærilegt.
Reykhóla. Heilsufar í lakasta lagi
Þingeyrar. Fremur kvillasamt.
Flateyrar. Mjög kvillasamt ár og
einkum áberandi kvef, hálsbólga og
inflúenza.
ísafj. Mikið bar á farsóttum á árinu.
Heilsufar annars gott.
Súðavíkur. Heilsufar fremur gott á
árinu.
Hólmavíkur. Heilsufar fremur gott.
Hvammstanga. Heilsufar allgott,
miðað við undanfarið ár.
Blönduós. Sóttarfar með meira móti.
Sauðárkróks. Sóttarfar með meira
móti.
Hofsós. Heilsufar gott í héraðinu.
Farsóttir gerðu lítið vart við sig.
Ólafsfj. Heilsufar með verra móti
vegna farsótta.
Dalvíkur. Kvillasamt nokkuð.
Akureyrar. Heilsufar með lakara
móti.
Grenivíkur. Heilsufar í meðallagi.
Breiðumýrar. Heilsufar með lakara
móti. Dæmi voru til, að nemandi
alþýðuskólanum að Laugum fengi
rauða hunda, hlaupabólu og hettusótt
á þeim 4 mánuðum, sem skólinn starf-
aði seinna part vetrar.
Húsavíkur. Verður að teljast far-
sóttaár, þar sem mislingar og hettu-
sótt náðu mikilli útbreiðslu, enda góð-
ur jarðvegur hér um slóðir. Fólk hefur
viða einangrað sig af miklum dugnaði,
en nú brást bogalistin. Engin dauðs-
föll urðu i sambandi við þessar far-
sóttir, og má segja, að margir andi
léttara, eftir að hafa lokið sér af.
Egilsstaða eystra. Heilsufar með
betra móti.
Bakkagerðis. Heilsufar sæmilegt.
Engar alvarlegar afleiðingar af völd-
um sjúkdóma.
Seyðisfj. Almennt heilsufar gott á
árinu.
Djúpavogs. Heilsufar sæmilegt.
Kirkjubæjar. Heilsufar mátti teljast
gott á árinu.
Víkur. Einkum kvillasamt fyrra
hluta ársins.
Vestmannaeyja. Heilsufar með lak-
ara móti, enda var þetta hið mesta
farsóttaár.
Keflavikur. Heldur kvillasamt.
A. Farsóttir.
Töflur II, III og IV, 1—28.
1. Kverkabólga (angina tonsillaris).
Töflur II, III og IV, 1.
1951 1952 1953 1954 1955
Sjúkl. 9850 10365 9183 8466 10065
Dánir 11111
Skráð með meira móti, en að öðru
leyti með svipuðu sniði sem tíðast
áður. Stöku sinnum smáfaraldrar, ekki
sizt í heimavistarskólum, en oftar ein-
stök dreifð tilfelli. Langtiðust í börn-
um innan 10 ára aldurs. Þó að viða
annars staðar sé gert, og Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin ætlist reyndar til,
hefur aldrei verið reynt að skrá hér
sérstaklega kverkabólgu af völdum
keðjukokka (angina streptococcica),
enda hlýtur slikt að vera mikill
slumpareikningur, þegar sýklarann-
sóknum verður ekki við komið.
Hafnarfj. Algeng í öllum mánuðum
ársins.
Akranes. Gerir talsvert vart við sig
allt árið.
Kleppjárnsreykja. Samfelldur far-
aldur í júli—sept. Kliniskt virtist
sjaldan eða aldrei vera um strepto-
kokkainfektion að ræða.
Búðardals. Á kverkabólgu bar meira
og minna allt árið.
Reykhóla. Viðloðandi flesta mánuði
ársins.
Þingeyrar. Flest tilfelli í Núpsskóla.
Hvammstanga. Viðloðandi allt árið.
Sauðárkróks. Má heita faraldur í
október—nóvember. Ekki mjög þung
og fylgikvillar fáir, og valda því vafa-
laust nýju lyfin.
Hofsós. Dreifð yfir allt árið. 2 sjúk-
lingar fengu ígerð i háls.
Akureyrar. Stundum talsvert út-
breidd. Engin dauðsföll, enda mun
pensilín eða aureomycín hafa verið
notað í hinum þyngri tilfellum sjúk-
dómsins.
Grenivikur. Yfirleitt væg.
Breiðumýrar. Ekki sem faraldur
nema í október og nóvember í og
kringum skólana að Laugum.
Húsavikur. Fá tilfelli og dreifð, en
sum allþung með igerðu"’