Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Blaðsíða 101
— 99
1955
lingum, en flestar vægar. Margt fannst
mér afbrigðilegt við þenna mænu-
sóttarfaraldur, miðað við þá mænu-
sótt, sem lýst er í kennslubókum, og
mun það vera sama sagan og annars
staðar, þar sem þessi faraldur gerði
vart við sig.
Patreksfj. í október fór að bera á
torkennilegum taugasjúkdómi, líkust-
um poliomyelitis. Veiktust margir, og
nokkrir lömuðust, en enginn dó. Veik-
in náði hámarki seinna hluta desem-
bermánaðar, en þá lágu 50 rúmfastir.
Ástand á mörgum heimilum bágborið,
og nokkur varð að leysa upp. 2 togar-
ar, gerðir út héðan, lögðu aflann upp
annars staðar vegna fólkseklu í frysti-
húsunum. Veikin var að því leyti frá-
brugðin venjulegri poliomyelitis, að
lamanir komu i mörgum tilfellum
seint, allt upp i 5 vikur frá því sjúk-
lingur veiktist, svo að fullvíst væri.
Mörg residiv. Aberandi mikið um bak-
strengja-affektionir, svo sem sensibi-
litetstruflanir, þrálátir verkir, einkum
í baki og útlimum, ataxie, enda þótt
ekki væri um lömun að ræða. Auk
þess þrálátt svefnleysi, mikill sviti,
slappleiki og minnisleysi. Margir gátu
ekki lesið vegna þreytu í augum, en
sáu þó ekki tvöfalt. Þvagtruflanir
sjaldgæfar og engin einkenni frá melt-
ingarfærum.
ísafi. 1 október varð vart nokkurra
tilfella, er grunsamleg gátu talizt sem
mænusótt, en án lamana. í desember
eru skráðir 6 sjúklingar með polio-
myelitis; öll tilfellin væg og án lam-
ana.
Blönduós. Skráð í 2 börnum í júlí,
og voru einkennin nokkuð óljós, lam-
anir engar, en ótviræð áhrif á mið-
taugakerfi.
Höfða. 1 maður fékk mænusótt og
mun hafa smitazt í Reykjavík. Slapp
við lamanir.
Sauðárkróks. Barst inn í héraðið i
nóvembermánuði, og eru þann mánuð
skráð 3 tilfelli, öll án lamana. í des-
ember nær hún talsverðri útbreiðslu,
°g eru nú 4 tilfelli með lömun; 1 mað-
ur fær bulbær lömun og deyr eftir
stutta legu. Fékk hann súrefnisgjöf og
voru gerðar ráðstafanir til þess að
flytja hann til Reykjavikur í flugvél,
en hann dó, áður en komizt yrði af
stað. Enginn annar lamaðist alvarlega.
Sennilega hafa miklu fleiri en skráðir
eru veikzt vægt. Þeir, sem skráðir eru,
eru fullorðið fólk. Sumir fengu all-
mikil neurotisk einkenni með veik-
inni, þó að þeir væru ekki lamaðir,
enda taugaveiklaðir fyrir og voru
lengi að ná sér. Um sum þessara til-
fella var erfitt að segja, hvort um
mænuveiki væri að ræða eða polio-
myelitisphobia samfara taugaveiklun.
Hofsós. Þessarar veiki varð ekki
vart hér á árinu, enda þótt hún gengi
hér í næsta nágrenni. Þann tima, sem
mænusóttar varð vart i Sauðárkróks-
héraði, var óvenjumikil heilbrigði í
Hofsóshéraði og þvi minni möguleikar
á að greina skakkt væga mænusótt.
I október og nóvember komu fyrir 4
tilfelli af hitaveiki, sem ekki fannst
nein skýring á, en engin af höfuðein-
kennum mænusóttar fundust að þess-
um sjúklingum. 2 af tilfellum þessum
eru á mánaðarskrá.
Ólafsfj. 2 börn fengu lömunarvott
öðrum megin í andlit (facialparesis),
telpa 1 árs og 5 ára drengur. Grun
hef ég um, að væg, ekki greinanleg
tilfelli hafi komið fyrir þegar í nóv-
ember.
Akureyrar. Ekkert tilfelli mænusótt-
ar kom hér á árinu, og mátti það ein-
kennilegt teljast, þar sem sjúkdómur-
inn var jafnútbreiddur og raun bar
vitni um í Reykjavík og víða annars
staðar á landinu. Samgöngur voru al-
gerlega óhindraðar milli Akureyrar og
Reykjavikur, meðal annars flugsam-
göngur daglega, og fjöldi skólafólks
frá Reykjavík og víðar af Suðurlandi,
sem stundaði nám i Menntaskólanum
á Akureyri. Enga skynsamlega skýr-
ingu virðist mér vera hægt að finna
á þessu, nema ef vera skyldi um ó-
næmi að ræða hjá fólki hér síðan
1948—49, að Akureyrarveikin geisaði
og tók flesta af íbúum héraðsins, þótt
ekki yrðu allir mikið veikir. 2 sjúk-
lingar sendir úr Svarfdælahéraði í
Sjúkrahús Akureyrar.
Þórshafnar. í byrjun desember
veiktist hér 31 árs gamall karlmaður
með um 39° hita, uppköstum og mikl-
um höfuðverk. Eftir 3 daga lækkaði