Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Side 141
— 139 —
1955
svaranlegt, og skal þó guð vita, að ég
taldi henni litla lifsmöguleika. Nú fór
fæðing þegar í gang, sem áður er sagt;
að vísu fékk hún eitt kollapskast, áður
en henni lyki (pentazol, 3 glös), en
hún rétti enn við. Gaf ég henni salt-
vatnssprautur (um 200 ml) undir húð,
og batnaði við það hjartastarfsemin
(úr um 150 slögum niður fyrir 120),
og var þá málinu bjargað. En ekki var
hún búin að ná sér að fullu fyrr en
eftir ca. 8 mánuði. Til mála hafði
komið að senda hana suður á milli
hlæðinganna, en flugveður var aldrei,
fyrr en daginn eftir fæðinguna. Barn-
ið dó í fæðingunni. Intoxicatio gravi-
úitatis: Rúmlega fertug kona send á
fæðingardeild Landsspítala. Ó1 þar
andvana tvíbura. Abortus án kompli-
kationa 1 tilfelli; tilefni líklega anae-
mia.
Búðardals. Allar fæðingar gengu vel
og án sérlegra aðgerða. 1 fósturlát er
mér kunnugt um. Ljósmæður skýra
ekki frá neinu.
Reijkhóla. Læknir viðstaddur 3 fæð-
ingar, eitt skipti til að deyfa, annað
sinn til að sauma ruptura perinei,
lmiðja sinn til að ná fastri fylgju, og
var það gert með Credé. 23 ára frum-
byrja, komin 8 vikur á leið, ferðaðist
nokkra tugi km í bíl. Þá tók að blæða,
°g fóstur kom án hjálpar. Heilsaðist
vel.
Bíldudals. Ekkert fósturlát, svo að
vitað sé.
Þingeyrar. Tvær fjölbyrjur, 28 og
38 ára, létu fóstrum sínum þriggja
mánaða gömlum. Voru hreinsaðar hér
á sjúkraskýlinu og gefið blóð vegna
mikilla blæðinga.
Flateyrar. Fæðingar gengu vel og'
ekki um neinar meira háttar aðgerðir
að ræða. 1 barn fæddist andvana og
var sennilega dáið, áður en fæðing
hófst. 1 fósturlát skrásett.
Bolungarvíkur. 28 ára fjölbyrja
missti barn sitt 12 timum eftir fæð-
ingu. Ég var ekki viðstaddur þá fæð-
ingu, en var kallaður til barnsins, rétt
áður en það dó. Þótti ljósmóður það
anda óreglulega og vera óeðlilega
blátt; var svo líka, cyanosis í andliti,
höndum og fótum og öndun veik, líkt
°8 Cheyne-Stokeskyns væri. Var við-
staddur fósturlát hjá 18 ára frum-
byrju; fóstrið ca. 4 mánaða. 30 ára
fjölbyrja ól tvibura; var fæðing held-
ur langdregin og siðari tvíburinn i
þverlegu, en vending og framdráttur
auðveldur.
ísafj. Fæðingar gengu yfirleitt vel,
og engin kona fékk barnsfararsótt.
Lítið um afbrigðilegar fæðingar. 3
konur fengu meðgöngueitrun.
Súðavíkur. Fæðingar eðlilegar. 2
konur ólu börn á sjúkrahúsi vegna
erfiðra aðstæðna og sjúkleika. Partus
difficilis hjá háðum. Kona lét fóstri,
og var legið skafið á sjúkrahúsi ísa-
fjarðar. Hyperplasia gingivae gravi-
darum: 1 tilfelli (in mense VIII).
Hólmavíkur. Allar fæðingar gengu
eðlilega fyrir sig.
Hvammstanga. Fæðingar allar held-
ur auðveldar. Engin tangarfæðing.
Ljósmæður geta ekki um nein fóstur-
lát, og ekki var læknis vitjað vegna
fósturláta, en utanlegsþykkt sprakk í
einni konu, sem var skorin upp með
góðum árangri.
Blönduós. Graviditas extrauterina
kom einu sinni til aðgerðar. Var hér
um að ræða 33 ára konu í næsta húsi
við spítalann. Komið var að henni
liggjandi i öngviti við símatólið í for-
stofunni hjá sér — hafði ætlað að
sima á hjálp. Hún var i skyndi borin
inn á skurðarborð og gefið þar Vi 1
af macrodex. Hún kvaðst hafa haft
nokkra verki i kviðarholi um morg-
uninn og hefðu þeir ágerzt, en ekki
blæðingu. Eymsli og fyrirferðaraukn-
ing fannst í vinstri fossa iliaca. Hún
var í mjög slæmu losti, sem ekki batn-
aði við infusionina, mátti heita púls-
laus, og var því í snatri og mjög léttri
svæfingu gerður skurður, numin burtu
eggrásin og eggjakerfið, sem var með
kriueggsstórri cystu, og henni gefin
önnur flaska af macrodex á meðan,
en hin þriðja þegar á eftir. Þrátt fyrir
þetta hélzt lostið við, og var það miklu
meira en samsvaraði blóðmissinum,
sem ekki var neitt gífurlegur. Eftir
4. flöskuna af macrodex fór hún að
rétta við og heilsaðist vel upp frá
þvi. Er þetta enn eitt dæmi þess, hve
nauðsynlegt er að hafa nóg af þessu
ágæta efni við höndina, þegar um lost