Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Page 142
195S
— 140 —
er að ræða, jafnvel þegar það stafar
af blóðmissi. Barnsfarir með minna
móti. Tangarfæðing varð hjá 1 konu,
sem verið hafði lasin mikið af með-
göngutímanum, var frumbyrja, og
barnið bar að í framhöfuðstöðu. Fram-
dráttur gerður í 1 skipti vegna sitj-
andafæðingar. Langháskalegasta fæð-
ingin varð hjá konu, sem hafði fengið
þungaeitrun fyrir allar fæðingar, en
þetta var hin þriðja, og auk þess mikla
eftirburðarblæðingu. í þetta skipti var
fylgjan föst, og af þvi að ég bjóst við
blæðingu, hafði ég við höndina andar-
nefsspekulum, korntöng og nóg af
tróði. Fylgjan sýndi sig að vera pla-
centa accreta partialis, og varð ég að
rífa hana lausa, en konan fékk þá
mestu blæðingu, sem ég hef nokkurn
tíma séð. Ég beið ekki boðanna, en
hafði eins fljót handtök og mér var
unnt og tróð legið samstundis upp
með 3 stórum „remsum“, jafnhliða
þvi sem konunni var gefið ergometrin
í æð. Síðan var henni gefið macrodex
í æð, enda var hún mjög blóðrunnin.
Nokkur ágreiningur hefur verið milli
fæðingarlækna um réttmæti tróðs við
eftirblæðingum, vegna smithættu, en
ég tel sjálfsagt að nota það, ef konan
virðist í hættu, enda smitháskinn ekki
jafnmikill og áður en fúkalyfin komu
til sögunnar. Ég hef nokkrum sinnum
gripið til þess að nota tróð siðustu
árin og hef alltaf sæfð áhöld og efni
til þess í fæðingartösku minni. Fóst-
urlát urðu 4 innan héraðs og 2 konur
fluttar á spítalann af þeim sökum. Var
gerð útsköfun á annarri og sömuleiðis
á 2 konum úr Höfðakaupstað.
Sauðárkróks. Tilefni læknisaðstoðar
venjulega, að óskað var deyfingar eða
nærveru læknis. 1 barn tekið með
töng hjá 21 árs primipara og jafn-
framt gerð episiotomia, i annað skipti
var gerð episiotomia aðeins. Eitt sinn
var ég kvaddur langt fram i sveit til
að sauma konu, er fengið hafði mikla
sprungu í perineum og vagina. 2 börn
fæddust andvana. Önnur konan, sem
var primipara, tæplega fullgengin
með, varð vör við, að fósturhreyfingar
hættu, og var ekki heldur hægt að
heyra fósturhljóð. Fæddi hún rúmri
viku siðar lítið eitt macererað fóstur.
Hin konan kom á sjúkrahúsið með
barnið í burðarliðnum, og hefur það
að likindum dáið í fæðingunni. 1 barn
fæddist um 2 mánuðum fyrir tímann
og var undir eins sent í fóstur á fæð-
ingardeild Akureyrarspítala og mun
hafa dafnað sæmilega. 3 börn fædd-
ust vansköpuð á árinu: 1 með epispa-
dia (móðirin fékk rauða hunda, er 4
mánuðir voru liðnir af meðgöngu-
tíma), annað barnið vantaði eyra og
hið þriðja var með klofinn góm og
vör. 10 konum leystist höfn á árinu.
Lágu þær allar á sjúkrahúsinu, og var
gerð evacuatio uteri á 9 þeirra, en ein
var gengin með fulla 6 mánuði, og var
þar um að ræða abortus completus.
Hún hafði mikla toxicosis og háan
blóðþrýsting, en batnaði nokkurn veg-
inn að lokum.
Hofsós. 1 frumbyrja fékk fóstur-
eitrun, bjúg, háþrýsting og eggjahvítu
í þvagi seinustu 2 vikur meðgöngu-
timans. Fékk meðferð í heimahúsum
og fæddi eðlilega. 2 konum varð að
gefa pitúitrín til að herða á fæðingu.
Var það í bæði skiptin gefið IV2 klst.
eftir að konan var orðin greið og gerð
áður exploratio vaginalis. Hjá einni
konu varð að kreista út fylgjuna með
Credé-handtaki. Hafði í tveim fæðing-
um áður orðið að sækja fylgjuna með
hendi. 2 konur fengu ígerð i brjóst
eftir fæðingu. Batnaði báðum vel, eftir
að skorið hafði verið i meinin. 2 fóst-
urlát er mér kunnugt um í héraðinu,
4 og 22 vikna.
Ólafsfi. Ekkert stórvægilegt bar út
af, og oftast um deyfingu að ræða.
Akureyrar. Á það skal sérstaklega
bent, að óvenjumargar konur hafa
haft lækni við fæðingu, og stafar
aukningin mest af þvi, að á árinu
fæddu 227 konur á fæðingardeild
sjúkrahúss Akureyrar, og var þar
alltaf læknir viðstaddur. Allar kon-
urnar lifðu, og heilsaðist þeim vel.
Mjög lítið um, að fólk komi til lækna
til að fá ráðleggingar viðvíkjandi tak-
mörkun barneigna, og frekar eru það
konur en karlar sem í þeim erinda-
gerðum koma.
Grenivíkur. Fæðingar gengu yfir*
leitt vel. 4 konur fæddu á sjúkrahúsi
Akureyrar vegna heimilisástæðna.