Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Page 144

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Page 144
1955 — 142 — febrúar fæddist annað barn með sams konar vanskapnað, og virtist þar vanta 3 vikur upp á tíma. Mjög athyglisvert er, að feður téðra barna eru bræður, og þau virðast hafa komið undir um svipað leyti. Sömu foreldrar höfðu áður eignast börn (2 hvor hjón), sem reynast heilbrigð. Eigi kunnugt um slikan vanskapnað í ættum foreldr- anna. 3 fósturlát mér kunn; engar telj- andi komplikationir. Búða. Mín oftast vitjað vegna óska um deyfingu eða til að herða á sótt. Framdráttur gerður í eitt skipti vegna sitjandafæðingar á siðara tvíbura. Fylgju þrýst út nokkrum sinnum með Créde. Kunnugt um 2 fósturlát. Djúpavogs. Fæðingar allar eðlilegar. Tók tvisvar á móti barni, annars við- staddur til að deyfa. Einu sinni sótt- leysi (42 ára multipara). Gefið pet- hidin og seinna pitusol. Gekk kon- unni þá vel að fæða. Kona i Breiðdal fékk mikla blæðingu um þrem vikum eftir fæðingu. Var orðin mjög blóðlítil og máttfarin, þegar ég sá hana. Blæð- ing stöðvaðist eftir methergíngjöf, og konan fékk 500 cc af macrodex, sem hún hresstist vel af. Nokkrum tímum seinna byrjaði aftur mikil blæðing. Var hún þá send í flugvél til Reykja- víkur. 1 fósturlát. Engin aðgerð nauð- synleg í sambandi við það. Sveinbarn fæddist vanskapað: pes equinovarus bilateralis. Strax sent til Reykjavíkur. Hefur farið vel fram við meðferð. Vestmannaeyja. Öll börn fæddust lifandi, en síðan dóu 5 skömmu eftir fæðingu. 4 þessara barna voru ófull- burða og þar af eitt vanskapað. Að öðru leyti gengu fæðingar yfirleitt vel. Keisaraskurður var ekki gerður á ár- inu, og er það nýlunda. Töng var lögð á tvisvar vegna sóttleysis og tvisvar sótt fylgja. Blöðruegg var skafið út einu sinni og einu sinni gert við utanlegsþykkt. Mér er kunnugt um 6 fósturlát. Abortus provocatus var ekki gerður. Læknir oftast viðstaddur til að deyfa kollhríð. Þríburar fæddust einu sinni, og lifðu þeir allir til tveggja mánaða aldurs, en þá dó einn, sem alltaf hafði verið pasturslítill. Tvíbur- ar fæddust einu sinni og heilsaðist vel. Öllum konum heilsaðist vel. Við athugun á brjóstmötun ungbarna kom í ljós, að meðalbrjóstmötunartími var tæpir 2 mánuðir. Eyrarbakka. Kona dó rúmri viku eftir fæðingu. Hún ól tvibura, og gekk fæðingin mjög vel. Læknir ekki við- staddur. 17 klukkustundum eftir fæð- inguna fékk konan krampaflog (ec- lampsia post partum), síðan meðvit- undarleysi (coma). Hún var flutt á fæðingardeild Landsspitalans og lézt þar eftir viku. Laugarás. Kona fæddi andvana mey- barn um 32 vikna. Var látið fyrir 2—3 dögum. Ein mjög erfið tangarfæðing. V. Slysfarir. Slysfaradauði og sjálfsmorð á sið- asta hálfum áratug, teljast sem hér segir: 1951 1952 1953 1954 1955 Slysadauði 92 71 90 70 08 Sjálfsmorð 18 17 12 19 23 Rvík. Slys urðu 22 mönnum að fjör- tjóni á árinu, en 8 frömdu sjálfsmorð, og 1 féll fyrir hendi annars manns. í umferðarslysum meiddust samtals 222, þar af létust 7, og auk þess dó 1 maður af afleiðingum bifreiðarslyss á fyrra ári. 2 drengir, 3ja og 5 ára, voru að leika sér á sleða á Ásvalla- götu, er bifreið ók yfir þá, og létust þeir báðir samstundis. 5 ára stúlka varð fyrir vörubifreið og lézt þegar í stað. 8 ára drengur varð fyrir bifreið á Reykjanesbraut og lézt í I.andsspít- alanum nokkrum klukkustundum síð- ar. Danskur maður, 32 ára, var á gangi á götu í útjaðri Reykjavíkur í myrkri, er bifreið ók aftan á hann. Hann lézt í Landsspítalanum fáum stundum síð- ar. 48 ára gamall maður varð fyrir bifreið og hlaut opið brot á hægra fót- legg. Hann fékk seinna æðabólgu i fótinn og enn síðar endurtekna blóð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.