Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Qupperneq 185
— 183 —
1955
af samþykkt 3, mjólkurísframleiðsla
4) þar af samþykktar 3, brauð- og
lujólkurbúðir 4, þar af samþykktar 3,
hárgreiðslu- og snyrtistofur 4, þar af
samþykktar 3, sælgætisgerðir 4 (sam-
bykktar), rakarastofur 3 (samþykkt-
ar), kjötiðnaður 1 (samþykkt), sumar-
hótel 1 (samþykkt), kornmölun 1
(samþykkt), kaffibrennsla 1 (sam-
þykkt), breytingar á húsnæði eða
starfsemi 15, þar af samþykktar 13,
ýmsar umsóknir 8,þar af samþykktar 5.
Onnur mál, sem heilbrigðisnefnd fjall-
aði um, voru m. a. frárennslismál og
holræsagerð. Gerðar tillögur til bæjar-
verkfræðings í þeim málum. Samþykkt-
ar reglur fyrir starfsfólk á matvinnslu-
atöðum. Samþykkt var að ráða sérfræð-
lng til að gera athugun á loftræstingu í
veitinga- og samkomuhúsum, og hefur
hann skilað álitsgerð um veitingahús-
hi. Gerð var samþykkt um, að allt kex
°g sælgæti, sem ætlað er til smásölu,
skuli geymt og afhent í hreinuin smá-
söluumbúðum. Samþykktin um kexið
kom til framkvæmda 1. apríl n. k., en
saelgæti 1. febrúar n. k. Borgarstjóri
leitaði umsagnar nefndarinnar í 5 mál-
Utn. Nefndin gaf 15 fyrirtækjum fyrir-
>næli um endurbætur, að viðlagðri
lokun. Lokun kom til framkvæmda á
3 stöðum. Eitt fyrirtæki var svipt leyfi
til rjómaisframleiðslu, og afturkallað
var leyfi til sölu á brauði á einum
stað. Enn fremur var bannaður rekst-
ur tveggja liænsnabúa.
Hafnarfi. í septembermánuði var
staðfest hin nýja heilbrigðissamþykkt
fyrir Hafnarfjarðarkaupstað. Heil-
hrigðisfulltrúinn sagði lausu starfi
sinu frá 1. desember s. 1., og annar var
ekki ráðinn í hans stað um áramót,
svo að enn er lítt byrjað að fram-
fylgja ákvæðum hinnar nýju sam-
hykktar. Síðari árin hafa margar mat-
vörubúðir færzt í nýtízkuhorf, en þó
er enn langt í land, að vel sé i þeim
efnum.
Flateyrar. Heilbrigðisnefndin hefur
horið fram ýmsar aðfinnslur og gert
ýmsar tillögur, t. d. að komið væri á
fót sorphreinsun, þar sem lega staðar-
>?8 er þannig, að það, sem hent er i
ijöru, berst upp á eyrina aftur, en
árangur furðu litill.
Ólafsfi. Lítil, nema að sjá um fram-
kvæmd á vorhreinsun bæjarins.
Akureyrar. Eins og undanfarin ár
afgreiddu þeir héraðslæknir og heil-
brigðisfulltrúi langflestar þær kvartan-
ir, sem bárust, án þess að leggja þær
fyrst fyrir heilbrigðisnefnd, en ef um
meira háttar mál var að ræða, eða ef
kærendur sendu skriflegar umkvart-
anir, voru málin ætið lögð fyrir nefnd-
ina í heild og rædd þar, áður en þau
voru formlega afgreidd. Á árinu var
staðfest ný heilbrigðissamþykkt fyrir
Akureyrarbæ, og er hún til mikilla
bóta frá því, sem áður var.
Vestmannaeyja. Frumvarp að nýrri
heilbrigðissamþykkt hefur verið af-
greitt af heilbrigðisnefnd til bæjar-
stjórnar. Heilbrigðisnefnd beitti sér
aðallega fyrir lagfæringum í hrein-
lætismálunum í bænum, svo sem sorp-
hirðingu og frárennsli. Nokkur mis-
brestur vill verða á því, að aðrar
nefndir bæjarstjórnar og framkvæmda-
aðilar virði tillögur heilbrigðisnefndar
sem skyldi, og er þvi ekki að furða,
þótt einstaklingar verði erfiðir við-
fangs.
20. Ónæmisaðgerðir.
Tafla XX, 1—5.
Kúabólusetning féll með öllu niður
í mörgum héruðum eða úr henni varð
lítið, bæði vegna tíðra farsótta og ekki
sízt fyrir ráðstafanir, sem af hálfu
hins opinbera höfðu verið gerðar til
almennrar mænusóttarbólusetningar,
með þvi að ekki þótti henta að hafa
aðra almenna bólusetningu með hönd-
um samtímis. Þegar til kom, varð þó
ekkert úr mænusóttarbólusetningu á
þessu ári. Þá er bóluefnis hafði verið
aflað og einmitt skyldi hafizt handa,
bárust fregnir vestan um haf af þeim
slysum i sambandi við mænusóttar-
bólusetningu, sem vöktu ugg urn, að
slíku bóluefni væri ekki enn alls kost-
ar treystandi.
Hafnarfi. Bólusetningar hafa farið
fram eins og að undanförnu, en að-
sókn að frumbólusetningu er sáralitil.
Horfur eru á, að innan fárra ára komi
börnin alls óbólusett í barnaskóla.