Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Side 201

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Side 201
Dagana 16.—25. júlí síðast liðinn var á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofn- unarinnar haldin ráðstefna i Spa í Belgiu til að fjalla um slys á börnum. Ráðstefnuna sátu fulltrúar frá 21 landi i Evrópu. Grein þessi er rituð eftir heimkomu af ráðstefnunni. Henni er vitaskuld ekki ætlað að vera nein tæmandi greinargerð um slysfarir. Hér verður aðeins stiklað á stóru og margt undan fellt með öllu. Þó að stuðzt sé við heimildir og skoðanir, sem fram komu á ráðstefnunni, er greinin ekki skýrsla um niðurstöður af umræðum og ekki heldur einskorðuð við slys á börnum. Heimildir mínar að öðru leyti eru Accidents in Childhood og Accident Mortality among Children, hvort tveggja gefið út af Alþjóðaheilbrigð- isstofnuninni, Manntalsskýrslur Hag- stofu íslands og Heilbrigðisskýrslur landlæknis. Að tilmælum minum lét hagstofustjóri, Klemenz Tryggvason, reikna út íslenzku tölurnar í töflum III og V, og kann ég honum beztu þakkir fyrir. Á síðustu áratugum hefur mann- dauði í menningarlöndum af völdum sjúkdóma farið ört minnkandi á bezta skeiði ævinnar, og hefur að þessu stuðlað mjög margt, sem hér verður ekki rakið. Viðleitni manna við að hafa hemil á slysum hefur á hinn bóginn borið miklu minni árangur. Þau líkj- ast marghöfðuðum þurs: þegar eitt höfuð er höggvið af, vex annað í staðinn. Þó að tekizt hafi að miklu leyti að uppræta tilteknar hættur og aðrar hafi að kalla horfið af sjálfu sér vegna breyttra lífshátta, hefur hin öra tækniþróun skapað nýjar í stað- inn. Menningin hefur í senn búið mönnum áður óþekkt öryggi og áður ókunnar hættur. Þótt slysfarir hafi ef til vill óvíða aukizt að ráði og sums staðar minnkað nokkuð, hefur stór- lækkuð dánartala af völdum sjúkdóma óbeint orðið til þess að skipa slysum í efsta sæti banameina framan af ævi. Eins og nú standa sakir, eru slys al- gengasta dánarorsök í menningarlönd- um frá 1 árs aldri og fram á fullorð- insár, sums staðar fram að fertugs- aldri. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hef- ur nú meðal annars uppi viðleitni við að beina athygli þjóða í enn rikari mæli að slysförum, orsökum þeirra og tildrögum og tiltækilegum varnarráð- stöfunum, Ráðstefnan í Spa var þáttur i þeirri viðleitni. Hér á eftir eru birtar töflur um slysfarir í nokkrum löndum, þar á meðal á íslandi. Við samanburð á löndum verður að hafa i huga, að ís- lenzku tölurnar eru mjög lágar sökum mannfæðar. Þær geta þvi fremur en tölur fjölmennra þjóða sveiflazt til, ef tekin eru stutt tímabil i einu, með því að t. d. eitt sjóslys getur valdið mikilli hækkun. Þetta á þó alveg sérstaklega við, þegar hver aldursflokkur er reikn- aður sér. Eigi að síður gefa tölurnar mynd af ástandinu á því tímabili, sem um er að ræða hverju sinni. Tölurnar á töflu I sýna, hve slysa- dauði er hlutfallslega mikill á íslandi, borið saman við önnur lönd i Evrópu. Tímabilin 1939—1942 og 1943—1946 taka að vísu yfir styrjaldarárin, og þó að dauðaslys af hernaðaraðgerðum séu ekki talin hér með, eru hinar háu tölur frá þessum árum sennilega að einhverju leyti afleiðing styrjaldar- innar og þess ástands, sem skapaðist við liersetuna. En jafnvel þótt þessum árum væri sleppt úr, eru tölurnar fyrir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.