Studia Islandica - 01.06.1967, Page 106

Studia Islandica - 01.06.1967, Page 106
104 mættust, að minnsta kosti nokkurn veginn sem jafnokar. 2. Þeir voru margir. „Einkum voru margir landnámsmenn tengdir Suðureyjum,“ segir Jón Jóhannesson.1 3. Þeir bjuggu, ef trúa má Landnámu, að einhverju leyti samfellt á vissum svæðum, til dæmis í Landeyjum og á Kjalarnesi. 4. Þjóðfélagsstaða þeirra var hin sama og annarra landnáms- manna. Atriði 2,3 og 4 hafa stuðlað að því, að sérkenni þeirra í orðafari og sagnageymd hafi lifað og breiðzt út. Það er ljóst, að mörg, ef til vill öll, gelísk tökuorð í íslenzku hafa borizt með þessum mönnum, og ekki er ástæða til að ætla annað um hugsanleg sagnaatriði.2 Á síðari hluta þessa tímabils, eftir landnámsöld, hafa kelt- nesk sagnaatriði getað borizt til Islands meðan samband var við löndin fyrir vestan haf, annaðhvort beint eða um Noreg.3 Má líta á nokkur atriði, sem minna á þetta. I Eiríks sögu rauða segir frá Þórhalli, þegar skip hans rak upp á írlandi. I Skálholtsbókartexta segir: „þa let. Þorhallr lif sitt.“ En i Hauksbókartexta segir: „let Þorhallr þar lif sitt eftir þvi sem kavpmenn hafa sagt.“ 4 Vafalítið er þetta við- bót Hauks Erlendssonar, og þetta minnir á, hvað var eðli- leg fréttaleið. I Jóns sögu Gunnlaugs mimks er merkileg frásögn rnn Gísl Illugason, sem var á Irlandi með Magnúsi Erlingssyni 1102-1103. Sagan segir, að hann hafi verið formaður fyrir 1 Jón Jóhannesson 1956, 29. 2 Mörg sömu tökuorðin koma ekki aðeins fyrir i islenzku, heldur einnig i færeysku og í norsku. Það bendii til þess, að þau hafi breiðzt út frá nýlendum norrænna manna fyrir vestan haf og mælir fastlega á móti þvi, að þau hafi verið tekin upp i islenzku úr máli gelískumælandi manna hér á landi. Sjá um þetta einkum Chr. Matras 1958, 89-99, en hann nefn- ir einnig þjóðfræðileg atriði í þessu sambandi. Eitt tökuorð má með nokkr- um likum rekja til vestræns landnáms, sem Landnámabók segir, að hafi verið í Landeyjum, Helgi GuSmundsson 1966-67, kafla X. Þess ber sér- staklega að gæta, að rannsóknir á gelískum tökuorðum benda til skozks uppruna þeirra. Samband virðist því einkum hafa verið við Skotland og skozku eyjarnar. Það kemur heim við athuganir fornleifafræðinga, Krist- ján Eldjárn 1956, 323, Gísli Gestsson 1959, 67, Kristján Eldjárn 1966, 70. 3 Sbr. Irlandslýsinguna í Konungsskuggsjá. 4 Sven B. F. Jansson 1945, 68.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.