Þjóðmál - 01.03.2020, Síða 37

Þjóðmál - 01.03.2020, Síða 37
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 35 Markaðshagkerfið býr til sterkt samfélag Hér er nokkuð fjallað um inngrip ríkisvaldsins til að halda hagkerfinu gangandi eins og hægt er á meðan kórónuveiran gengur yfir. Eins og oft er þegar gefur á bátinn er deilt um þá hugmyndafræði sem til þarf til að koma samfélögum, hvort sem það er hér Íslandi eða annars staðar, fyrir vind. Margir telja aðgerðir ríkisins nú einhvers konar rétt- lætingu á sterku ríki og jafnvel sósíalisma. En ætli það sé einhver ástæða til að halda að hið frjálsa markaðshagkerfi líði undir lok? „Nei, það er engin ástæða til þess því við erum með þessum aðgerðum að standa vörð um markaðshagkerfið. Við erum að gera það sem þarf til að fyrirtækin geti komið standandi úr þessu og haldið áfram rekstri og fólk haldið sinni vinnu, það er verra að vera atvinnulaus en að lækka í tekjum,“ segir Þórdís Kolbrún aðspurð um þetta. „Frjálst markaðshagkerfi er ekki að líða undir lok heldur er það forsenda þess að við náum okkur upp úr þessu. Það skiptir máli að fólk geti stofnað fyrirtæki, fengið hug- myndir, þroskað hæfileika sína og notið góðs af þeim. Því sterkari sem þessir þættir eru, þeim mun betur getum við gert það sem þarf að gera til að bæta lífskjör okkar allra. Þess vegna minni ég á að við erum í þessu saman. Við eigum eftir að fara í gegnum erfiða tíma, við munum sem samfélag gera einhver mistök og það er ekki sjálfgefið að samstaðan haldi. Við erum sterkt samfélag vegna þess að hagkerfið er markaðsdrifið og hefur getað haldið uppi því öfluga velferðarkerfi sem við höfum.“ Þórdís Kolbrún vitnar að fyrra bragði í nýleg orð Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, þar sem hann sagði að faraldurinn hefði sýnt fram á að það væri til samfélag og mikilvægt væri að huga vel að því. „Sumir hægrimenn hafa gjarnan vitnað með velþóknun í ummæli Margrétar Thatcher sem sagði að það væri ekkert til sem héti samfélag, heldur bara hópur einstaklinga,“ segir Þórdís Kolbrún. „Mér fannst Boris því sýna kjark með því að leggja áherslu á þetta. Auðvitað erum við samfélag. Við höfum búið til grunnkerfi sem allir hafa aðgang að og Sjálfstæðis flokkurinn á stóran þátt í því. Stefna okkar slær réttan tón í því að til þess að skapa sterkt samfélag þarf hver og einn einstaklingur að hafa nægilegt frelsi til þess að gera það sem hann langar til að gera, svo lengi sem hann skaðar ekki aðra, og njóta góðs af framtakssemi sinni. Til þess að gera okkar besta í því að Ísland sé raunverulega land tækifæranna, sem mér finnst Ísland vera margfalt meira en mörg önnur ríki, þurfum við líka að huga að mannauði í landinu og það gerum við meðal annars með því velferðarkerfi sem við búum við.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.