Þjóðmál - 01.03.2020, Page 62
60 ÞJÓÐMÁL Vor 2020
Yfir 1.000 manns á opnunarhátíð
Samkomubann var sett í Rússlandi 15. mars
þar sem miðað var við 50 manna hámarks-
fjölda. Á setningarathöfn mótsins voru hins
vegar yfir 1.000 manns og þar var tekin mynd
sem fór víða og þótti mörgum benda til þess
að móts haldarar tækju ástandið ekki nógu
alvarlega.
Mótið hófst svo 16. mars. Það var þá nánast
eini íþróttaviðburðurinn í gangi og fékk
því meiri athygli en ella. Ekki truflaði veiran
keppendur á beinan hátt á mótsstað en hún
hafði samt sem áður mikil áhrif á mótshaldið.
Kínverjinn Wang Hao lýsti þeirri skoðun
að hann teldi að rétt hefði verið að fresta
mótinu. Alexander Grischuk lýsti yfir svipuðu
og sagði skákmönnunum líða illa við að tefla
við þessar aðstæður. Fabiano Caruana, næst-
stigahæsti skákmaður heims og stigahæsti
keppandi mótsins, talaði um að hann væri
ekki öruggur að komast aftur til Bandaríkjanna
vegna takmarkana á flugi þangað.
Ian Nepomniachtchi (Nepo) varð veikur fyrir
sjöttu umferðina og fékk þurran hósta. Hann
var prófaður tvívegis og reyndist vera með
venjulegt kvef. Það breytti því ekki að hann
vann Ding Liren og hafði vinningsforskot
eftir umferðina. Ding Liren var hins vegar
heillum horfinn og ljóst að tveggja vikna
einangrun hafði haft áhrif á form hans. Ding
tefldi nýlega 100 skákir í röð án taps en hafði
tapað þremur skákum á mótinu. Nepo sjálfur
gerði athugasemdir við mótshaldið og sagði
aðstæður fjandsamlegar þrátt fyrir að vera
efstur.
Nepo mætti svo varamanninum franska
Maxime Vachier-Lagrave í sjöundu umferð
og tefldi franska vörn. Afbrigðið sem hann
tefldi hefur meira að segja númerið C19. Ekki
vænlegt til árangurs enda sá Rússinn ekki til
sólar og tapaði sannfærandi.
Þegar mótið var hálfnað voru Vachier-
Lagrave og Nepo efstir með 4½ vinning.
Höfðu vinningsforskot á næstu keppendur.
Staða Frakkans er sterkari, þar sem innbyrðis-
úrslit eru fyrstu oddastig fái keppendur
jafnmarga vinninga.
Mótið skyndilega stöðvað
Anish Giri lýsir því svo að hann hafi verið að
undirbúa sig á hótelherbergi sínu um kl. 12
þann 26. mars, þar sem hann átti að mæta
Nepo í áttundu umferð kl. 16. Þá hringir
síminn. Stúlka úr mótsnefndin segir honum
að mótið hafi verið stöðvað, þar sem Rússar
Yfir 1.000 manns mættu á setningarathöfn áskorendamótsins í Katrínarborg í Rússlandi. (Mynd: Lennart Ootes/FIDE)