Þjóðmál - 01.03.2020, Page 64
62 ÞJÓÐMÁL Vor 2020
Magnús Örn Gunnarsson
Framtíð á hraðferð
Áhrif COVID-19 á þróun vinnumarkaðarins
Nú þegar vinnumarkaðurinn er að aðlagast
nýjum kringumstæðum vegna COVID-19 er
vert að íhuga ýmislegt sem þessari krísu fylgir.
Þá vil ég fjalla einna helst um skiptingu
frá hefðbundnum skrifstofustörfum yfir í
fjarvinnu. Þegar fólki er ráðlagt að halda sig
sem mest heima til að draga úr og hægja
á smitum reynist þessi breyting mörgum
einstaklingum og fyrirtækjum erfið.
Ég starfa fyrir alþjóðlegu stjórnmála-
hreyfinguna Students for Liberty, sem
stofnuð var árið 2011. Það sem er sérstakt
við þennan vinnustað, sem samanstendur af
rúmlega 100 manns, er að það er engin skrif-
stofa. Árið 2015 var ákveðið að loka skrifstofu
samtakanna í Arlington í Virginíu og nota
fjármagnið sem ráðstafað hafði verið í leigu
frekar til þess að ráða fleira starfsfólk. Frá því
að ég hóf störf samtökunum hef ég unnið
við fartölvuna og þurft að aðlagast því sem
margir á vinnumarkaði eru að takast á við um
þessar mundir.
Kostir fyrir fyrirtæki
Það má ef til vill segja að þessi krísa sé að
flýta fyrir eðlilegri þróun vinnumarkaðarins,
sem hefur verið að færa sig nær og nær
fjarvinnu á undanförnum árum. Ljóst er að
töluverður samdráttur verður hjá fyrirtækjum
og að störfum mun fækka vegna þessa
ástands. Þó má gera ráð fyrir því að margar af
þeim breytingum sem við erum að sjá núna
séu varanlegar, þá sérstaklega traust atvinnu-
markaðsins gagnvart fjarvinnu. Mig langar
að nefna nokkur atriði sem ég tel vera af hinu
góða við þessar breytingar.
- Ferðakostnaður mun lækka.
Stjórnendur fyrirtækja hafa áttað sig á því
að hægt er að halda færri fundi þar sem
einstaklingar þurfa að hittast í persónu.
Ferða kostnaður verður tekinn fyrir og gagn-
rýndur meira en nokkurn tímann áður.
Heimurinn hefur einfaldast með net-
væðingunni og nú geta hinir flóknustu fundir
farið fram á netinu. Þar með sparast fúlgur
fjár í óþarfa ferðakostnað og sú þróun er
líklegri til að skila fyrirtækjum hagnaði.
- Fasteignakostnaður mun lækka.
Það verður erfiðara að réttlæta háan fasta-
kostnað við rekstur á atvinnuhúsnæði þegar
fyrirtæki geta verið með stóran hluta starfs-
manna sinna í fjarvinnu.
- Fyrirtæki verða ekki háð staðsetningu.
Einstaklingar geta búið hvar sem þeim hentar
og ekki látið takmarkað atvinnuframboð hafa
áhrif á val staðsetningar. Þetta mun gjörbylta
atvinnumarkaðnum og leysa hann úr þeim
fjötrum sem hann er í.
Tækni og framþróun