Þjóðmál - 01.03.2020, Side 69

Þjóðmál - 01.03.2020, Side 69
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 67 Gústa guðsmann, Óskar Halldórsson útgerðarmann og marga fleiri. Siglufjörður – Saga bæjar hvort í senn upplýsandi og skemmtileg þáttaröð. Það má telja til þrjú atriði sem gera þættina svo vandaða sem þeir eru. Í fyrsta lagi er handritið að þáttunum gott – sem gerir frásögnina góða. Egill er góður sögumaður, hann kann að draga fram allt í senn áhugaverða, skondna og mikilvæga þætti í bland við alvarleikann sem fylgir lífsbaráttunni á svo afskekktum stað. Uppbygging þáttanna er vel skipulögð, sögu - línan er skýr og skilmerkileg og mörgum ólíkum þáttum mannlífsins og sögunnar gerð góð skil. Í öðru lagi er mikið til af myndefni, bæði ljós- myndum og myndböndum, sem augljóslega nýttist vel við gerð þáttanna og er mikið notað. Myndefnið gerir mikið fyrir þátta- röðina og færir sögunni mikið líf. Í þriðja lagi eru það frásagnir þeirra sem þekkja sögu bæjarins. Innlegg viðmælenda, sem flestir upplifðu þann tíma sem helst er fjallað um eða hafa sterka tengingu við hann, eru fróðleg og bæta enn í við góða frásögn Egils og fyrrnefndar myndir. Að öðrum ólöstuðum má sérstaklega minnast á frásagnir Anitu Elefsen safnstjóra, Gunnars Rafns Sigurbjörnssonar, fv. skólastjóra og bæjarstjórnarmanns, Jónasar Ragnarssonar, fv. ritstjóra, Örlygs Kristfinnssonar myndlistar- manns og Öldu Möller matvælafræðings. Dagskrárgerð er í höndum Egils, Jóns Víðis Haukssonar og Ragnheiðar Thorsteinsson. Þau hafa einnig gert þáttaraðirnar Vestur- farar og Kaupmannahöfn – höfuðborg Íslands, sem báðar voru áhugaverðar og vandaðar, og kunna augljóslega vel til verka. Miðað við þessar þrjár þáttaraðir hafa þau vonandi áætlanir um önnur sambærileg verkefni. Þetta góða efni réttlætir næstum því útvarpsgjaldið. Þáttaröðin er aðgengileg á vef RÚV. Eftir að hafa horft á þættina má ætla að dagsferðir mínar til Siglufjarðar verði fleiri. Höfundur er ritstjóri Þjóðmála. Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, fv. skólastjóri og bæjarstjórnarmaður, Örlygur Kristfinnsson myndlistarmaður, Anita Elefsen safnstjóri og Alda Möller matvælafræðingur eru meðal fjölmargra viðmælenda þáttaraðarinnar og gefa með frásögnum sínum góða sýn inn í líf Siglfirðinga.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.