Strandapósturinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Strandapósturinn - 01.06.1981, Qupperneq 23

Strandapósturinn - 01.06.1981, Qupperneq 23
frétta, en bað mig að bíða. Kom hann fljótt aftur og sagði að maður frá Fjarðarhorni væri að fara heim og tilvalið fyrir mig að fylgjast með honum. Ég lét ekki segja mér það tvisvar, kvaddi heimilisfólk og þakkaði hjálpsemina. Síðan hefi ég jafnan hugsað hlýtt til Halldórs sýslumanns. Ég hitti manninn frá Fjarðarhorni og varð honum samferða heim til hans. Þegar þangað kom var farið að bregða birtu, en ég hélt samt áfram að Fögrubrekku, því ég þekkti lítið eitt til bóndans þar, Halldórs Ölafssonar. Hafði hann meðal annars verið kennari við Heydalsárskólann meðan hann var við lýði. Ég kom að Fögrubrekku í kolamyrkri og eitthvað vafðist fyrir mér að finna bæinn, því hvergi sást Ijós í glugga. Það tókst nú samt á endanum. Gisti ég þar um nóttina. Næsta dag, sem var laugardagur, var komið besta veður, hæg sunnanátt. Auðséð var, að ár og lækir höfðu vaxið mikið um nóttina. Sagðist því Halldór bóndi ætla að lána mér vinnumann sinn til fylgdar fram að Óspaksstöðum, og skyldi hann bera mig yfir tvær óbrúaðar ár, sem voru á leiðinni. Vinnumanninn, Guðbjörn Benediktsson, þekki ég vel, því hann hafði um tíma verið vinnumaður á Broddanesi. Skildi hann ekki við mig fyrr en á Óspaksstöðum, sem eru austan Hrútafjarðarár og því í Húna- vatnssýslu. Ég hitti húsfreyju og bar henni kveðju bróður henn- ar, og tók hún mér sem ég væri ættingi hennar. Þar dvaldist ég það sem eftir var dagsins og fram undir kvöld á sunnudag. Ég fékk það staðfest að pósturinn færi frá Stað snemma á mánu- dagsmorgun, og ákvað ég því að fara um kvöldið yfir að Grænumýratungu, því vegurinn upp á Holtavörðuheiði lá þar fast við túngarðinn. Ég fékk lánaðan hest yfir Hrútafjarðará til að þurfa ekki að krækja niður á brú. Gekk vel yfir ána, þótt hún væri á miðjar síður, en hesturinn óð sterklega. Rak ég hann svo til baka og hélt síðan til bæjar í Grænumýrartungu. Heldur gekk illa að sofna um kvöldið, því ekki var laust við að dálítinn geig setti að mér við tilhugsunina um ferðina yfir heiðina. Áður en nokkur dagsskíma sást var ég vakinn og sagt að vera tilbúinn, því pósturinn væri vanur að taka daginn snemma. Litla matarlyst hafði ég þótt lagt væri að mér að borða vel. 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Strandapósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.