Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1981, Page 64

Strandapósturinn - 01.06.1981, Page 64
Með byggingu þessa húss var því lagt inn á nýjar brautir í tvennum skilningi. Og nú loks varð ekkert lengur til hindrunar. Guðmundur Bárðarson og menn hans tóku til starfa og luku smíðinni áður en árið var á enda. Húsið var afhent á almennum hreppsfundi á gamlársdag árið 1896 og mátti þá heita tilbúið til skólahalds. Á þeirri samkomu ríkti glaðværð og fögnuður. Menn komu ekki aðeins til að skoða nýstárlegt hús, heldur fyrst og fremst til að fagna unnum sigri og nýju ári, ári sem markaði tímamót í menningarsögu sýslunnar. Hugsjón Strandamanna um skóla- stofnun var loksins orðin að veruleika, nær hálfri öld eftir að hún kom fyrst fram. Sjaldan mun hafa verið efnt til mannfagnaðar í Strandasýslu af meira tilefni. Nú gætu ýmsir haldið, að það hafi varpað skugga á þessa gleði, að rikið eða landssjóður lagði ekki eina krónu af mörkum í þessa skólabyggingu. En svo var áreiðanlega ekki . . Hér var enginn þrýstihópur á ferðinni, sem gerði harðar kröfur til sam- félagsins. Og þó gerði þetta fólk kröfur, og þær miklar, en — kröfunum beindi það í eigin barm, já fyrst og síðast til sjálfs sín. Þessi fullyrðing er annað og meira en orðin tóm. Því til sönn- unar skal upplýst, að á hreppsfundinum 31. desember 1896 var lagður fram samskotalisti vegna skólabyggingarinnar. Á þann lista rituðu með unglingum og gamalmennum meir en 40 manns og lofuðu að gefa samtals 1052 krónur fyrir árslok 1897. Þar hefur margur gefið aleigu sína i lausum fjármunum. Til þess að menn átti sig betur á verðmæti þessarar gjafar, þá er einfaldast að breyta henni í mánaðarlaun. Fyrsti skólastjóri Heydalsár- skólans Sigurgeir Ásgeirsson hafði 25 kr. í laun á mánuði fyrstu árin. Gjafaloforðin nema því 42 mánaðalaunum, sem jafngildir 10 og hálfri miljón króna á þvi herrans ári 1979, þó aðeins sé reiknað með 250 þús. kr. mánaðarlaunum. Og að meðaltali hefur hver gefandi látið ein mánaðarlaun af hendi rakna til Heydalsárskólans, auk þess, sem fór til hans óbeint gegnum sveitarsjóðinn. Ekki þori ég að fullyröa að nú sé uppi fólk svo mikillar gerðar, þótt efni hafi meiri, enda mun ekki á það reyna í náinni framtíð. En svona stórir í sniðum voru forfeður okkar, 62
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.