Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1981, Síða 103

Strandapósturinn - 01.06.1981, Síða 103
land, þar var mikið um refagreni og voru stundum hópar af yrðlingum að leik í kringum grenin. Okkur unglingunum þótti gaman að skoða grenin en við gleymum víst aldrei hvað lyktin var vond er lagði út úr grenjaholunum. Það kom aldrei fyrir að við misstum fé af völdum tófunnar. Tófan flutti sig oft milli grenja, ýmist norður á Hærra-hraun eða út í svokallaða Bolla, þessir bollar voru þrír hvor upp af öðrum en tófan fór alltaf í efsta bollann. Það er alllangur spölur innan af Spena og norður í Bolla. Yrðlingana bar hún í kjaft- inum einn í einu og þurfti því oft að fara margar ferðir. Við sáum oft til hennar og létum hana alltaf óáreitta og gættum þess að hundamir ónáðuðu hana ekki. Þetta kot Kolbeinsvík er mjög gæðasnautt nema þar var mikill reki og hægur, það er að rekaviður staðnæmdist hvergi fyrr en inn í nesi og var því allur að heita mátti á einum stað. Ef viður festist við land tók hann ekki út aftur og voru það stór hlunnindi. í norðan sjógangi reif upp þara á skerjum og grynningum út frá landi og mynduðust stórar þarahrannir sem sjórinn braut á alldrjúgan spöl frá landi, þegar brimið gekk niður hrúguðust þessi ósköp upp í háa þarabakka á fjörunum, þetta var mjög gott fóður fyrir féð með útibeitinni og sparaði mikið hey. Árið 1906 flytur Guðmon Guðnason frá Brúará í Kaldrana- neshreppi að Kolbeinsvík. Áður bjó þar Guðmundur Jónsson er flutti það sama ár að Byrgisvík, báðar þessar jarðir voru ríkis- eign. Á þessum tímum þótti eftirsóknarvert að komast á þessi kot ef þau losnuðu úr ábúð. Allir vildu vera sem mest sjálfráðir með sig og sína. Þegar Guðmon faðir minn flytur að Kolbeinsvík var fjöl- skyldan átta manns, hjónin, fimm börn og móðir hans öldruð, lífsbaráttan var hörð. Faðir minn fór vestur að fsafjarðardjúpi til að afla heimilinu tekna en það gekk oft misjafnlega, þó man ég aldrei eftir sulti allt var borðað sem til matar gat talist meðal annars kræklingur er sóttur var í fjöru og soðinn til matar. Húsnæðið var mjög úr sér gengið, gömul torfbaðstofa er hélt ekki vatni og vindi, síðar var byggð allgóð baðstofa. Bústofn var mest 70 ær á fóðrum, ein kýr og vetrungur, fyrst 101
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Strandapósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.