Skessuhorn - 20.12.2022, Side 104
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022104
Hjördís Dögg Grímarsdóttir heldur
úti heimasíðunni mömmur.is og er
einnig undir því nafni á Facebook
og Instagram. Þar deilir hún með
lesendum sínum öllu því sem tengist
kökum og veisluhöldum en helsta
áhugamál Hjördísar er bakstur.
Mömmur.is
Hjördís er Skagakona og vinnur
sem kennari í Grundaskóla á Akra
nesi. Hún er gift Degi Þórissyni
og saman eiga þau drengina Aron
Elvar og Marinó Ísak. Hjördís
segir hugmyndina að mömmur.is
hafa kviknað fyrir um 15 árum en
heimasíðan var opnuð í nóvember
2008. „Ég var á þessum tíma dugleg
að baka alls kyns fígúrukökur og tók
iðulega myndir af herlegheitunum.
Þá fékk ég þá flugu í höfuðið að
gaman væri að leyfa öðrum að
njóta,“ segir Hjördís en fyrsti vísir
inn að mömmur.is var barnalands
síða, þar sem hún bjó til aðgang
fyrir kökurnar og setti þar inn allar
myndir af þeim kökum sem hún
bakaði. „Síðan fékk mikla athygli og
í framhaldinu fékk ég systur mína,
Tinnu Ósk, til liðs við mig því hún
hafði þekkingu á heimasíðugerð og
hjálpaði mér að koma efninu mínu
inn á nýja síðu. Mamma mín hún
Petrún hefur líka verið með mér frá
upphafi.“ Í framhaldinu var stofnuð
Facebooksíða undir sama nafni þar
sem fljótlega voru komnir yfir 20
þúsund fylgjendur og mikil umferð
var einnig í gegnum heimasíðuna.
Nafnið mömmur.is segir Hjördís
komið til vegna þess að allar þær
konur sem stóðu að heimasíðunni
eru mömmur.
Á þessum tíma var Instagram
ekki til og segir Hjördís að það hafi
tekið hana nokkur ár að ákveða
hvort hún ætti að fara þar inn
með sitt efni líka. „Það var svo
árið 2016 sem ég ákvað að slá til
og stofnaði þar Instagram reikn
inginn Mömmur.is en þar sýni ég
fylgjendum til dæmis, með stuttum
kennslumyndböndum, hvernig á
að baka alls konar kökur og annað
góðgæti,“ segir Hjördís og bætir
við að þar fái kennarinn í sér að
njóta sín þar sem hún útskýrir
hvernig hitt og þetta er búið til.
Skemmtilegast að
gera marengs
Hjördís segist hafa haft áhuga
á bakstri síðan hún var lítil en
mamma hennar bakaði mikið og
var Hjördís fljót að læra af töktum
hennar í eldhúsinu. „Mér finnst
skemmtilegast að baka marengs
botna. Ég elska að búa til falleg
munstur og gera botnana öðru
vísi en þessa hefðbundnu. Síðan
er líka skemmtilegt að búa til litlar
pavlovur sem er í rauninni bara lít
ill marengs. Brauð er líka ofarlega á
listanum en allt sem hægt er að gera
með brauðdeig heillar mig.“
Hefðbundinn
aðfangadagur
Aðventan hefur verið annasöm síð
ustu ár hjá Hjördísi þar sem þá er
mikið baksturstímabil. Hún gerir
smákökur, ís, laufabrauð og alls
konar eftirrétti sem hún sýnir fylgj
endum á sínum miðlum en hún
vinnur einnig fyrir valin fyrirtæki og
gerir jólatengt efni fyrir þau. „Ég er
mikið jólabarn og finnst þess vegna
mikilvægt að setja jólatréð snemma
upp, skreyta og setja upp jólaser
íur. Svo hlusta ég á jólalög allan
desem ber og er auðvitað mikið í
eldhúsinu,“ segir Hjördís en jólin á
hennar heimili eru, að hennar sögn,
frekar hefðbundin. „Við njótum
okkar á aðfangadag með því að fara
í jólakaffi hjá foreldrum mínum um
morguninn. Stússumst yfir daginn
og eldum síðan Hamborgarhrygg
og kalkúnabringu fyrir kvöldið,“
segir Hjördís en fjölskyldan borðar
yfirleitt heima hjá sér á aðfangadag.
„En við förum síðan í alls kyns jóla
boð yfir hátíðirnar. Við reynum þó
fyrst og fremst að slaka á og njóta
þess að vera saman.“
Hjördís segist ekki vera vana
föst þegar kemur að jólunum. „Mér
finnst samt ómissandi að gæða mér
á frómasnum hennar mömmu.
Og laufabrauðshefð tengda
fjölskyldunnar finnst mér líka
skemmtileg.“
Uppskriftir sem
hitta í mark
Hjördís ákvað að deila með
lesendum Skessuhorns nokkrum
uppskriftum sem henni þykir alltaf
hitta í mark: „Hér er ljúffengur
epla marengs sem er hægt að henda
upp með stuttum fyrirvara, sörur
sem kitla bragðlaukana, hnetu
smjörskökurnar hennar tengdó og
Bergbys brauðterta sem mér finnst
ómissandi yfir jól og áramót.“
Verði ykkur að góðu!
gbþ
Hlustar á jólalög allan desember í eldhúsinu
Uppskrift
9 stk eggjahvítur
450 g sykur
1 tsk cream of tartar
Fylling
¾ l. rjómi
3 stk epli
12 Lindor súkkulaðikúlur eða 3
mars súkkulaði
Skreyting
Karamellusósa
Kókosbollur
Aðferð
1. Þeytið eggjahvítur þar til fer að freyða. Bætið cream
of tartar saman við og haldið áfram að þeyta þar til
eggjahvíturnar eru stífþeyttar.
2. Bætið sykri saman við smám saman og haldið áfram
að þeyta þar til blandan er orðin stífþeytt.
Setjið blönduna í sprautupoka með sprautustútnum
1M eða frönskum stút.
3. Mótið litla 22-25 botna á bökunarpappír. Gott að miða
við að gera 1-2 aðeins minni til að nota efst fyrir topp-
inn.
4. Bakið við 130°C blástur í 1 ½ klst
5. Þeytið rjóma, brytjið epli og blandað saman við ásamt
12 Lindor rjómasúkkulaðikúlum. Mars súkkulaði
hentar líka mjög vel.
6. Þegar botnarnir hafa jafnað sig er þeim raðað á disk
t.d. 10 neðst. Rjómafylling sett ofan á ásamt 6-7
marengs botnum. Rjómafylling sett yfir, 3 marengs-
botnar, rjómafylling og síðan marengstoppur.
7. Hægt að skreyta enn meira með karamellusósu og
kókosbollum.
Marengstré með eplafyllingu
Þessi hugmynd er mjög jólaleg og skemmtilegt að bera fram yfir hátíð
irnar. Það er eitthvað svo hátíðlegt við marengs. Hægt að útfæra á alla vegu
og breyta og bæta fyllinguna eftir smekk. Marengstré er skemmtileg til
breyting frá hinum hefðbundna marengs þar sem litlum marengsbotnum
er raðað saman og rjómafylling sett á milli laga.
Dumle Sörur
Það er fátt meira freistandi á aðventunni en gómsætar sörur.
Hér eru þær í öllu sínu veldi, gómsætar eins og vaninn er og
með bragðgóðu dumlekremi.
Uppskrift
3 stk eggjahvítur
½ tsk cream of tartar
200 g flórsykur
200 g möndlumjöl eða möndlur
muldar í matvinnsluvél
Dumlekrem
3 eggjarauður
10 – 12 stk dumle karamellur
1 dl rjómi
100 g rjómasúkkulaði
3-4 msk síróp
200 g smjör (linað)
Súkkulaðihjúpur
300 g suðusúkkulaði (einnig hægt
að setja suðu- og mjólkursúkkulaði
til helminga)
Aðferð: Sörubotnar
1. Þeytið eggjahvíturnar þar til byrjar að freyða í
þeim. Bætið cream of tartar saman við og stífþeytið
eggjahvíturnar þar til hægt er að halda skálinni á
hvolfi án þess að eggjahvíturnar fari úr henni.
2. Sigtið flórsykurinn og blandið varlega saman við
með sleikju ásamt möndlumjölinu.
3. Setjið deigið á bökunarpappír með skeið eða
sprautupoka. Gott að miða við 1/2 -1 tsk.
4. Bakað í um 10 mínútur við 175°C hita
(blástur). Leyfið að kólna á t.d. grind.
Aðferð: Dumlekrem
1. Hitið dumle karamellur, rjómasúkkulaði og rjóma í
potti við miðlungshita. Kælið þegar karamellurnar
og súkkulaðið hafa bráðnað í rjómanum.
2. Þeytið eggjarauðurnar vel. Hitið sírópið örlítið og
blandið saman við í mjórri bunu. Bætið smjörinu
saman við ásamt dumle rjómablöndunni.
3. Oft er gott að kæla kremið örlítið og leyfa því að
þykkna áður en það er sett á sörubotnana.
4. Setjið kremið á sörubotnana með teskeið, gott að
miða við ½ - 1 tsk. Það er líka gott að setja kremið í
sprautupoka og sprauta kreminu á hverja köku.
5. Kælið kökurnar í smátíma á meðan súkkulaði-
hjúpurinn er bræddur.
6. Hjúpið sörurnar með súkkulaðihjúpnum.