Úrval - 01.12.1948, Blaðsíða 5
FJÓRA MÁNUÐI Á UTHAFSFLEKÁ
3
borð, var þilfarið 45 sm. yfir
sjávarmál.
Við skírðum flekann „Kon-
Tiki“, í höfuðið á sólkonungi
hinna fornu Inka, frumbyggja
Perú. Sagan segir, að eftir að
hann tapaði í orustu, hafi hann
flúið ásamt hinum hörundsljósu
þegnum sínum niður að strönd-
inni og siglt á haf út og aldrei
komið aftur. Á polynesisku eyj-
unum er Tiki minnst sem goð-
borinnar hetju, er fyrstur nam
þar land og taldi sig afkomanda
sólarinnar. Perúiska fornafnið
„Kon“ þýðir sól.
Áhöfnin var, auk mín og Her-
manns Watzinger, sem annaðist
veðurathuganir: Erik Hessel-
berg, sem annaðist hin siglinga-
fræðilegu störf, loftskeytamenn-
irnir Knut Haugland og Tor-
stein Raaby, sem getið höfðu
sér góðan orðstír á stríðsárun-
um, og Bengt Danielsson, mann-
fræðingur frá Uppsalaháskóla.
Við vorum á aldrinum 25 til
32 ára.
Hinn 28. apríl vorum við
dregnir út úr Callaohöfn af
dráttarbáti úr flotanum. Þegar
við slepptum lausu, drógum við
upp seglið, sem skreytt var
mynd af höfði Kon-Tiki.
(Frásögnin, sem hér fer á eftir,
er eins og leiðangursmenn sendu
hana frá sér jafnóðum um senditæki
sín).
13. maí. Við höfum verið á
reki í tvær vikur og borizt 500
mílur undan vindi og með Hum-
boldt straumnum. Hvassviðri
skall á skömmu eftir að Andes-
fjöllin hurfu bak við sjóndeild-
arhringinn. Við bisuðum í fimm
daga og nætur við stýrisárina
til þess að halda flekanum upp
í vindinn. Til þess þurfti minnst
tvo menn. En flotmagn flekans
reyndist furðumikið og lyfti
hann sér léttilega upp á öldurn-
ar. Miðskips var þurrt allan tím-
ann. Það er notalegt í skýlinu.
Við eyðum tímanum við lestur
og athuganir.
Lífið í sjónum er ótrúlega
auðugt. Það er eins og við sé-
um á siglingu í fiskibúri. Flug-
fiskarnir fljúga inn í skýlið á
nóttunni, heillaðir af ljósinu frá
gaslampanum. Með því að nota
þá fyrir beitu, getum við veitt
meiri fisk á fimm mínútum en
við getum torgað á tveim dög-
um.
6. maí stefndi stór hvalur
beint á okkur og blés ákaft.
Þegar hann var tæpa tvo metra
frá okkur, fór hann í kaf og