Úrval - 01.12.1948, Blaðsíða 30
28
TJRVAL
með Bandamönnum, og hann
flýði til Ameríku. Þar vann hann
að því að stofna herdeild sjálf-
boðaliða meðal Gyðinga. Seinna
gerðist hann liðsmaður í Gyð-
ingaherdeild Allenbys hershöfð-
ingja hins brezka í Palestínu.
Hann losnaði úr herþjónustu ár-
ið 1920, varð ritari í Alþýðu-
sambandi Gyðinga og gerðist
brátt mikill áhrifamaður innan
þess. Þegar fyrstu verulegu á-
tökin urðu í Palestínumálinu ár-
ið 1936, var Davíð áhrifamesti
maðurinn í Jerúsalemsdeild um-
boðsstjórnar Gyðinga, og hafði
tekið við forustunni af hinum
aldna leiðtoga dr. Chaim Weiz-
mann.
Það var um þetta leyti, sem
Hitler og Mussolini byrjuðu að
láta til sín taka í löndunum um-
hverfis Miðjarðarhafið. Öeirðir
brutust út meðal Araba í Palest-
ínu vegna mikils innflutnings
Gyðinga frá Þýzkalandi og víð-
ar að. Davíð varpaði sér út í
þessa pólitísku baráttu með
fjögur djarfhuga markmið fyr-
ir augum: að koma á skipu-
lögðu landnámi Gyðinga í stór-
um stíl; að mynda víðtækt
zíonistasamband til þess að geta
haft hemil á róttækustu öflun-
um; að komast að samkomu-
lagi við hinn sanngjarna leið-
toga Paiestínu-Araba, Mousa
Alami, um lausn á deilum Gyð-
inga og Araba; og í London
bauð hann brezku stjórninni
30 000 Gyðingahermenn frá Pal-
estínu, ef til stríðs kæmi við
fasistastjórnina á ítalíu.
Öll þessi viðleitni hans fór út
um þúfur. Sennilega var það ó-
umflýjanlegt á þeim tíma, þeg-
ar brezku stjórninni var áhuga-
mál að komast að samningum
við möndulveldin og zíonistarnir
voru óþægilegur þrándur í götu
þeirrar viðleitni. Á hinn bóginn
draga jafnvel ekki vinir Davíðs
dul á, að hann hafi verið ósam-
vinnuþýður, bráðlátur og allt of
margmáll við samningaumleit-
anirnar til þess að vænta hefði
mátt góðs árangurs. Þegar
brezka stjórnin gaf út hvíta bók
um Palestínumálið 1939, var
ekki annað sýnna en ósigur Gyð-
inga væri alger. í henni stóð, að
ekki kæmi til mála, að Gyðing-
ar fengju að gera Palestínu að
hreinu Gyðingaríki.
Andstaða Gyðinga gegn þess-
ari ákvörðun Breta blossaði upp
eftir síðustu heimsstyrjöldina.
20 000 Gyðingar tóku þátt í
henni í liði Breta. Davíð stóð
fremstur í þeirri baráttu sem