Úrval - 01.12.1948, Blaðsíða 126
124
ÚRVAL
henni þar sem hún sat við arin-
eldinn í háum stól, og frúin
tók þegar upp hinar léttustu
viðræður, þótt Angelo fyndi
engin önnur svör en „já“ eða
„nei“, fengi ekki stunið upp
neinum öðrum orðum né heldur
látið sér þau til hugar koma, en
hefði glaður getað lamið höfð-
inu við harðan arinvegginn af
einskærum fögnuði yfir því að
fá að góna og hlýða á hina
yndislegu húsfreyju, sem sat
þarna og lék sér að fiðrildi í
sólargeisla. I þessari orðlausu
aðdáun gengu bæði hina blóm-
skrýddu slóð ástarinnar allt til
miðnættis, er hinn góði mynd-
höggvari hélt á brott, ljómandi
af fögnuði.
Á leiðinni komst hann að
þeirri niðurstöðu með sjálfum
sér, að ef göfug frú héldi honum
svo nærri pilsum sínum fjórar
stundir kvöldsins, þá skipti
engu máli þótt hún gerði svo,
það sem eftir lifði nætur. Er
hann hafði dregið nokkrar ynd-
islegar ályktanir af þessum for-
semdum, ákvað hann að beiðast
blíðu hennar eins og um venju-
lega konu væri að ræða. Síðan á-
kvað hann að myrða alla — eig-
inmanninn, frúna og sjálfan sig
— heldur en missa af snældu
þeirri, sem spunnin er á gleði
einnar stundar. Hann var í
sannleika svo ásthrifinn, að
honum fannst lífið sjálft ekki
nema lítilfjörleg áhætta í spili
ástarinnar, þar sem einn dagur
var þúsund lífa virði.
ítalinn gekk nú á höggmyndir
sínar með hamri og meitli,
hugsandi um hið liðna kvöld, og
skemmdi nú margt nefið, þar
eð hugurinn var ekki með í
verki. Er honum varð það ljóst,
greip hann til ilmvatnanna og
lagði leið sína til hinnar fögru
frúar í von um að snúa hinu
sæta hjali hennar til dáða. En
er hann var í nálægð drottn-
ingar sinnar, lét hún sína kven-
legu hátign lýsa, og veslings
Cappara, sem var ljónhugaður í
laumi, varð eins og sauður á
svip er hann mændi á fórnar-
dýr sitt. En er nálgaðist sú
stund, en ástríðan æsist, var
hann þó næstum kominn í kjöltu
frúarinnar og hélt henni þétt í
örmum sér. Hann hafði náð
kossi, hafði tekið hann, sér til
mikillar uppörfunar; því að
þegar kossinn er gefinn, er neit-
unarvaldið enn í höndum kon-
unnar, en þegar hún lætur taka
hann, getur elskhuginn tekið
heilt þúsund. Þetta er ástæðan