Úrval - 01.12.1948, Blaðsíða 60
58
ÚRVAL,
Hvað veldur þessu algera ó-
næmi fyrir líkamlegum sárs-
auka? Dr. Boyd segir, að marg-
ar kenningar hafi verið settar
fram um truflanir eða skemmd
á taugakerfinu, en engin full-
nægjandi skýring hafi þó enn
fundizt.
Ef hægt væri að finna frum-
orsök þessa ónæmis, gæti það
leitt til þess, að fundin yrði að-
ferð til að eyða varanlega kvöl-
um af völdum ólæknandi sjúk-
dóma, eins og t. d. sumra teg-
unda krabbameins.
— Albert Deutsch í „New York Star“.
Sjúkrapottar afnumdir.
Fyrir nokkrum árum tóku
tveir sænskir læknar, G. Boh-
mansson og H. Malmros, sér
fyrir hendur að útrýma sjúkra-
pottum (á ljótu spítalamáli kall-
aðir ,,bekken“) á spítulum. Þeir
létu smíða stól, sem hægt er að
aka að rúminu. Sjúklingurinn
sezt á stólinn og er síðan ekið
fram á salerni, en stóllinn er
þannig gerður, að hægt er að
renna honum yfir setuna og
þarf sjúklingurinn því ekki að
hreyfa sig af stólnum.
Stóll þessi varð brátt svo vin-
sæll, að hann hefur verið tekinn
í notkun á öllum helztu sjúkra-
húsum í Svíþjóð. Hvað veldur
því, að sænskir læknar og hjúkr-
unarkonur taka þennan stól
mjög fram yfir sjúkrapottinn ?
Hinir tveir fyrrnefndu lækn-
ar höfðu lengi verið óánægðir
með hina miklu og óþörfu notk-
un stólpípu, sem almennt tíðk-
ast á sjúkrahúsum. í einu
stóru sjúkrahúsi voru gefnar
60 000 pípur á 160 000 legudög-
um. „Þetta getur haft skaðlegar
afleiðingar,“ ályktuðu þeir.
„Sjúklingarnir fá þá röngu hug-
mynd, að til þess að halda
heilsu, þurfi þeir nauðsynlega
að hafa hægðir á hverjum degi.
Og bregðist það, eigi þeir að
setja sér pípu.“
Eftir að hafa talað við hundr-
að sjúklinga, sem þjáðust af
harðlífi, sannfærðust þeir um,
að margir þeirra höfðu fyrst
kennt hægðatregðu eftir að þeir
höfðu legið á spítala. Þar höfðu
þeir fengið pípu næstum á
hverjum degi, og eftir að þeir
komu heim, fannst þeim þeir
ekki geta verið án hennar, eða
þeir byrjuðu að nota hægðalyf.
Maðurinn er þannig skapaður,
að hann á auðveldast með að
hafa hægðir sitjandi, þannig
verða honum mest not að kvið-
vöðvunum. Að hafa hægðir