Úrval - 01.12.1948, Blaðsíða 59
ÖNÆMI FYRIR SÁRSAUKA
57
fyrir líkamlegum sársauka.
Strax á fyrsta ári höfðu foreldr-
ar hennar tekið eftir, að hún var
óvenju hörð — grét aldrei, þótt
hún meiddi sig. Ársgömul hand-
leggsbraut hún sig við vinstri
olnbogann, en foreldrar hennar
urðu ekki vör við það, fyrr en
þau tóku eftir því, að handlegg-
urinn var boginn. Þau fóru með
hana til læknis, sem gerði að
brotinu, en hún kveinkaði sér
ekki.
Þrem mánuðum síðar braut
hún sig um hægri olnbogann,
og allt fór á sömu leið. Fjögra
ára fótbraut hún sig, eins og
áður er getið, og var farið með
hana á barnaspítalann. Faðir
hennar sagði læknunum:
,,Hún hefur alltaf verið afleit
með að skríða í grjóti og möl.
Hún nuddar sig til blóðs á hönd-
um og fótum án þess að skeyta
nokkuð um það. Þegar hún
skríður, styður hún niður hnú-
unum og nuddar allt skinn og
hold af hnúum og handarbök-
um.“
Dr. Boyd segir í skýrslu sinni,
að foreldrar hennar hefðu oftar
en einu sinni fundið lykt af
brenndu kjöti og við nánari at-
hugun uppgötvað, að Anna litla
kallaði sér makindalega upp að
heitum ofni. Hún segir, að sér
þyki notalegt að snerta heita
hluti. Einu líkamlegu óþægind-
in, sem hún kvartar undan, er
kuldatilfinning; henni er illa við
kalt vatn, og hún kvartar stund-
um undan kulda.
Hendur hennar og fætur eru
alsettar örum. Foreldrar henn-
ar urðu einu sinni að binda á
henni hendurnar, eftir að hún
hafði kroppað stykki úr nefinu
á sér, af því að hún sagði, að
sig klæjaði í það. Hún hefur
bitið frarnan af tungunni á sér
án þess að vita af því.
Ónæmi Önnu fyrir sársauka
veldur því, að hún á erfitt með
að gera sér grein fyrir, hvað öðr-
um finnst sárt. Hún er ákaflega
harðhent, þegar hún leikur sér
við önnur börn. En hún er ekki
ónæm fyrir andlegum sársauka.
Hún grætur, þegar tilfinningar
hennar eru særðar. Dr. Boyd
segir, að hún láti í ljósi hryggð,
ef önnur börn meiða sig, og hún
gætir þess vandlega, að bræður
hennar og systur meiði sig ekki.
Að öllu öðru leyti er hún eðli-
legt barn. Hún hefur gáfur í
meðallagi, eðlilega sjón og lykt-
arskynjun, og er eins og önnur
börn í útliti, að undanskildum
örunum eftir hin mörgu meiðsli.
8