Úrval - 01.03.1960, Side 14

Úrval - 01.03.1960, Side 14
tJRVAL ,ÞEIM MANNI GLEYMI ÉG ALDREI" til Carls Ben Eielson, liðsfor- ingja, og réði hann til Wilkins. Tilraunin tókst skínandi vel — að áliti Wilkins. Þrátt fyrir vélarstöðvun fimm stundum eftir að lagt var af stað frá Point Barrow í Alaska, lentu þeir vélinni á ísnum eins og ráðgert hafði verið. En á heim- leiðinni urðu þeir benzínlausir rétt í því, að þeir lentu í óveðri. Eielson varð að hætta aftur á lendingu í svarta myrkri og öskrandi byl, en lendingin tókst slysalaust. I þrjár vikur heyrðist ekkert frá þeim. Dag nokkurn höltr- uðu þeir inn úr dyrunum hjá veiðimanni, sem varð þrumu- lostinn yfir því að fá allt í einu gesti í afskekktan kofa. Þeir voru hálfdauðir af hungri og þreytu, en Wilkins leit á þetta eins og örvandi atburð, ekki ems og raun. Skömmu síðar heimsótti hann mig, og dökk augu hans ljómuðu þegar hann sagði mér frá þeirri reynslu, sem hann hafði fengið um lík- ur til þess að lifa af lendingu eða hrap á heimskautasvæðinu. Eitt sinn hafði hann dottið nið- ur um þunnan ís í 23 stiga frosti, og þá hafði hann reynt hina fornu aðferð Eskimóa til þess að ná bleytu úr fötum áð- ur en þau stokkfrjósa. Hann reif sig úr utanyfirfötunum og tróð þau niður í lausamjöllina. Snjórinn var svo þurr, að hann hafði sömu áhrif og þerripapp- ír, og saug í sig vætuna og varnaði því, að fötin frysu í klakabrynju. Það var aðeins tvennt, sem Wilkins hataði: Hræsni og um- tal á opinberum vettvangi. Hann sannaði þetta fyllilega þegar hann afrekaði það, sem Byrd flotaforingi hefur nefnt „stór- kostlegasta flug, sem nokkru sinni hefur verið framkvæmt í norðurskautsslóðum.“ Wilkins hafði lengi logað af áhuga fyr- ir því, að koma á fót flugleið frá Alaska til Spitsbergen. Ég studdi eldmóð hans, en aðrir litu tæpast eins björtum augum á hugmyndina. Þeir bentu á, að eins og Lindbergh árinu áður, myndi hann verða að fljúga lengi yfir opið haf. Þeir héldu líka að heimskautskuldinn myndi breyta olíu vélarinnar í krap. Wilkins lét ekki hræða sig. Eftir fleiri mánaða undirbún- ing í Alaska, hurfu þeir, hann cg Ben Eielson, blátt áfram einn góðan veðurdag í Lockhead Vega einþekju, og tóku stefnu á Spitsbergen í 3400 kílómetra fjarlægð. Áður höfðu blöðin ekki nefnt þetta einu orði. Framan af fengu þeir bjart veður, en síðar neyddi hríðar- veður þá niður á óbyggða, norska eyju, og þar urðu þeir að dúsa fimm daga án þess að geta aðhafst. Það var að þakka ótrúlegri dirfsku, að þeim tókst að sleppa frá eynni. Til þess að létta vélina og auka hraða hennar í hinum djúpa snjó, varð 8

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.