Úrval - 01.03.1960, Blaðsíða 16
TjTRVAL
,ÞEIM MANNI GLEYMI ÉG ALDREI'*
sem sagðar voru með venjulegu
imdirmati á þeim skerf, sem
hann hafði sjálfur lagt til.
Alla ævi lifði hann svo
óbrotnu lífi, að næstxnn mætti
jafna til klausturlifnaðar.
Hann eyddi síðustu árum æv-
innar við ýmiskonar vísinda-
störf í Framingham í Massa-
chusetts, og bjó þá í fátæklegu
herbergi í gistihúsi. Þægindi
munaður voru honum fánýti;
hann leit á það sem ævistarf að
endurbæta útbúnað til heim-
skautaferða, svo að menn ættu
auðveldara með að komast af
á norðurslóðum. Lögreglumaður
á varðgöngu um vetrarnótt kom
eitt sinn auga á dökkt hrúgald
í skafli við járnbrautarteina.
Hann hélt að þetta væri flæk-
ingur að helfrjósa þarna, og
fór að hrista hann. Hrúgaldið
reis snöggt upp; þetta var
Wilkins, sem var að reyna nýja
tegund svefnpoka.
Hann dó eins og hann hafði
lifað — í starfi. Hinn 1. des-
ember 1958 varð hann lasinn á
efnarannsóknarstofu sinni, en
lét sem ekki væri, og lauk erf-
iðu dagsverki. Þegar ég renni
huganum aftur í tímann, held
ég reyndar að honum hafi verið
Ijóst, að hverju fór, þvx hann
hafði að xmdanförnu sent mér
bréf eftir bréf, sem fjölluðu
um hitt og þetta, sem ætti að
kippa í lag. Það var eins og
hann vildi að séð væri fyrir
öllu áður en hann félli frá.
Hann var látinn innan
klukkustundar eftir að hann
kom heim á herbergi sitt. Hann
fannst innan um kassa með
neyðarmatvælum hermanna, en
þau hafði hann verið að reyna á
litlu suðutæki, sem hann eldaði
mat sinn við. Eftir útförina
kom ég í hið fátæklega herbergi,
sem hafði verið „heimili" hans.
Mér kom í hug tilvitnun í Swin-
burne, sem átti einkar vel við,
en hana hafði aðdáandi Wilkins
eitt sinn ritað í bók með blaða-
úrklippum um hann:
Sjálfan sig gaf, en seldi ekki,
fyrir sáluhjálp guði
né gull mönnum.
(Amerískar heimildir)
)-----(
Damon Runyon, hinn kunni blaðamaður og rithöfundur,
sagði stundum frá því hvernig hann fékk atvinnu í fyrsta
skifti. Meðan hann sat á biðstofu og var heldur óstyrkur,
kom skrifstofupiltur og bað hann um nafnspjald, er hann gæti
fært skrifstofustjóranum. Runyon átti ekki nafnspjald, en hann
seildist í vasa sinn og náði þar í spil, og tók úr þeim ás og
sagði piltinum að fá ritstjóranum þetta.
Runyon fékk stöðuna.
10