Úrval - 01.03.1960, Blaðsíða 76
tJRVAL
VERIÐ FEGURRI ÁRIÐ 1960 — HELDUR EN ÁRIÐ 1950
vera sem fegurst. Allir bera
virðingu fyrir fegurðinni, í
hverju því formi sem hún er,
og við reynum að fara vel með
fagra hluti. Af hverju skyld-
um við því ekki fara vel með
sjálfa okkur? Og ef þið vitið
ekki hvar skal byrja, skal ég
gefa ykkur nokkur ágæt ráð:
1. Munið að taka andlitsfarð-
ann af á hverju kvöldi,
hversu seint sem þér komið
heim.
2. Stígið á vigt öðru hverju,
og reynið að halda meðal-
vigt yðar.
3. Takið hendur og fætur
reglulega vel í gegn einu
sinni í viku.
4. Takið frá smáupphæð öðru
hvoru til kaupa á smávöru,
sem eykur fegurð yðar, þá
hafið þér síður samvizku-
bit af eyðsluseminni.
5. Farið snemma á fætur, svo
að þér hafið nógan tíma til
að fá yður góðan morgun-
verð og getið snyrt yður vel.
6. Notið svitameðul hvem dag
— þá eruð þér ekki með
áhyggjur af því.
7. Kaupið yður tvo tann-
bursta, annan notið þér á
morgnana, hinn á kvöldin.
8. Kaupið góðan hárbursta og
burstið reglulega hár yðar.
9. Gangið góðan göngutúr
öðm hvom, svo að þér fáið
blóðið á hreyfingu.
10. Lítið í hnakkaspegil, áður
en þér farið út, og athugið
hvort hárið situr rétt, hvort
saumamir em beinir. Bezt
væri ef þér gætuð eignazt
stóran forstofuspegil, þar
sem þér sjáið yður alla að
aftan. Það veitir öryggi,
þegar út á götuna kemur.
)---(
Xjr leikriti.
Sveinn: „Ég vil að allir fái hlutdeild í gæðunum, að allar
eignir verði sameign. Fátækir og ríkir verða ekki til, og aldrei
framar skal einn maður uppskera auð af miklum eignum, með-
an annar á varla jarðnæði fyrir gröf handa sjálfum sér. Eg
vil að allir verði jafnir, hafi sömu möguleika. Það fyrsta, sem
gera þarf, er að skipta öllum jörðum, peningum, einkaeignum."
Steinn: „Hverjir eiga að vinna það, sem vinna þarf?“
Sveinn: „O, við verðum auðvitað að hafa — þræla.“
— Aristófanes er höfundurinn Hann var uppi fyrir 2300 árum.
o----o
Lögfræðingur var að halda ræðu 17. júní, og þusaði heilan
klukkutíma og heldur óskáldlega. Loks gerði hann hlé á lop-
anum, og sagði:
— Nú ætla ég að leggja spurningu fyrir sjálfan mig.
— Það ætturðu helzt ekki að gera, kvað við rödd frá áheyr-
endum. Svarið gæti orðið heimskulegt.
70