Úrval - 01.03.1960, Blaðsíða 61
HEIMSOKN I FLÖTTAMANNABÚÐIR I AUSTURRÍKI
URVALi
Dönsk blaðakona heimsótti
nýlega Gerner Nielsen, fulltrúa
Rauða Kross-félaga Norður-
landa í Vínarborg. Starf hans
hefur verið í því fólgið að út-
vega þessu fólki húsaskjól, at-
vinnu og alla þá aðstoð, sem
kostur hefur verið á. Þrátt fyr-
ir geysimiklar gjafir og fjár-
framlög, eru flóttamannabúðir
ekki æskilegar vistarverur fyr-
ir þetta fólk að sögn hans.
,,Eftir uppreisnina í Ung-
verjalandi komu hingað um
180.000 flóttamenn. Um 10%
þeirra sneru aftur heim. Kan-
ada, Bandaríkin, Suður-Ame-
ríka, Ástralía og Nýja-Sjáland
hafa orðið heimili 87.000 flótta-
fólks þessa. Mikill hluti þeirra
hefur og fengið dvalarleyfi í
Frakklandi, Englandi og öðrum
Evrópulöndum, en 10.000 eru
hér þó ennþá. Þeir eru að
mestu leyti í tveim búðum, í
Kagran og Asten.
Okkur hefur gengið fremur
vel að útvega faglærðu fólki at-
vinnu, en þeim, sem enga mennt-
un hafa, hefur okkur síður tek-
izt að útvega dvalarstað og at-
vinnu. Margt af þessu fólki er
líka illa leikið andlega eftir
hvers kyns hörmungar og búið
að missa trúna á tilveruna. Það
hefur einmitt verið okkar erf-
iðasta verk að gefa því hana á
ný, fá það til að vinna og trúa
á sjálft sig. Þetta eru menn,
sem hafa orðið að hætta námi
eða ekki getað hafið nám,
vegna þess að „skyldur þeirra
við fósturjörðina“ hafa kallað
þá út í tilgangslausar styrjaldir.
I Karan-búðunum, sem eru
hér skammt utan við Vínar-
borg, búa um 6 þúsundir manna
í einum geysistórum skála, sem
líkastur er vörugeymslu. Hann
er þannig innréttaður, að hann
er allur þiljaður í litlar kytr-
ur, svo að hver fjölskylda geti
sofið aðskilin frá hinum. Oft
eru allt upp í 10 manns í einum
slíkum svefnskála. Við höfum
komið hér upp vöggustofum og
dagheimilum, svo að mæðum-
ar geti farið út að vinna. Það
er reynt að koma því svo fyr-
ir, að allir komizt út a. m. k.
tíma úr degi, ekki eingöngu
vegna peninganna, heldur allt
eins til að fólkið haldi andlegri
heilbrigði sinni. Hér rotnar
fólk andlega. Ungverjar eru
menn skapmiklir og blóðheit-
ir að eðlisfari, og þetta fólk er
taugaveiklað og yfirspennt.
Margir hafa orðið að skilja sína
nánustu eftir heima í Ungverja-
landi. Ötti, kvíði, öryggisleysi,
ástvinamissir, allt hefur þetta
hjálpazt að við að draga úr sið-
ferðisþreki þess. Sambúð svo
margra manna í allt of litlu og
óvistlegu húsrými hefur að
sjálfsögðu í för með sér stöð-
uga árekstra. Öfund, ákafinn í
að komast í burtu sem fyrst,
jafnvel þótt það verði á kostn-
að annarra, frumstæðasta hvöt
mannsins, baráttan fyrir dag-
legu brauði sínu og sinna, allt
þetta hrekur þetta fólk út í hat-
55