Úrval - 01.03.1960, Side 23

Úrval - 01.03.1960, Side 23
Baráttan gegn barnsfarasóttinni eftir Erik Múnster Hinn 9. ágúst 1848 varpaði maður nokkur sér fyrir járn- brautarlest, sem var á fullri ferð í nánd við þýzka bæinn Hannover. Verkamennirnir, sem fjarlægðu hinn limlesta líkama hans af teinunum, þekktu hann strax. Maðurinn var hinn fimm- tugi prófessor í fæðingarhjálp, Gustav Adolf Michaelis frá Kiel. Skýringu á sjálfsmorði próf- essorsins er að finna í bréfi frá einum vina hans til ame- rísks læknis: „Prófessor Michaelis réð sér bana í örvæntingu sinni yfir vanmætti sjálfs sín og lækna- vísindanna gegn ógn bamsfar- arsóttarinnar. Ég hef grun um, að ungur læknir, dr. Semmel- weis frá Vín, hafi flýtt fyrir dauða hans. Þessi dr. Semmel- weis hefur ritað í tímarit eitt og heldur því fram, þvert ofan í álit allra annarra lækna, að svonefnd smitefni berist með höndum læknanna milli líkanna, sem þeir kryfja, eftir að konur hafa látizt af barnsfararsótt, og hinna fæðandi kvenna. Dr. Semmelweis heldur því sem sagt fram, að læknunum sé nauðsynlegt að hreinsa hendur sínar í klórupplausn, áður en þeir snerta sjúklingana, ef þeir hafa verið við krufningu rétt áður. Prófessor Michaelis hélt sig hafa sannanir fyrir þessu. Hann ásakaði sjálfan sig fyrir öll þau dauðsföll, er honum fannst hann hafa valdið. Dauði ungrar frænku hans, sem lézt í höndum hans af barnsfarar- sótt, batt endahnútinn á líf hans . . 17

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.