Úrval - 01.03.1960, Síða 60
Heimsókn í flóttamannabúðir
1
Austurríki
Við, sem teljum það til sjálf-
sagðra hluta að eiga vistleg
heimili handa bömum okkar,
getum tæplega gert okkur
nokkra raunverulega hugmynd
um líf þess fólks, sem býr í
flóttamannabúðum víða um
heim.
I dag búa í Austurríki 10.000
Ungverjar í flóttamannabúðum.
1 fjögur ár hafa þeir beðið eft-
ir að komast sem innflytjend-
ur til einhvers lands, í óbifandi
trú á nýtt og betra líf. Eftir
uppreisnina í Ungverjalandi
flúðu land um 180.000 manna.
Langflestir þeirra hafa nú
fengið landvistarleyfi einhvers
staðar í heiminum. Enn er þó
nokkur hluti þeirra í flótta-
mannabúðunum í Austurríki.
Margur hefur undrazt, hversu
stór hópur flúði frá Ungverja-
landi eftir uppreisnina, og talið
ólíklegt, að atburðimir þar
hefðu verið svo alvarlegir. Við,
sem ekki vitum, hvað styrjöld
er, eigum erfitt að setja okkur
inn í kjör þessa fólks. Fjöl-
margir íbúar Mið- og Suður-
Evrópu eru örmagna eftir ára-
langan ófrið, þeir eru löngu
búnir að gleyma, út af hverju
fyrst var barizt. Eldmóður þess
er löngu slokknaður. Ungverjar
eru e. t. v. þreyttastir allra.
Fólk, sem í dag er þar á bezta
aldri, hefur aldrei lifað í
frjálsu, glöðu landi. Eftir hörm-
ungar síðari heimsstyrjaldar-
innar bjóst það við að sjá rofa
fyrir nýjum degi. En menn
finna sér alltaf eitthvað til að
berjast um. Lífsmátturinn,
þjóðernistilfinningin og allt,
sem þessu fólki hefur e. t. v.
verið heilagt, er horfið. Eftir
er aðeins tómleiki og umhugs-
unin um brauð næsta dags. Allt,
sem þetta fólk fer fram á, er
að fá að vera til í friði við sjálft
sig og aðra.
64