Úrval - 01.03.1960, Side 71

Úrval - 01.03.1960, Side 71
NIFLHEIMAFÖRIN tJRVALi sem talað hafði. Girnga Dass, og það er hans rétta nafn, hafði ég þekkt fjórum árum áður. En þá var hann Brahmin (prestur), sem Punjab-stjómin hafði lán- að einu Khalsia-fylkinu. Hann stjórnaði ritsímastöð, og þegar ég þekkti hann var hann glað- vær, vambmikill og þunglama- legur stjórnarstarfsmaður, og hafði furðulega hæfileika til þess að segja lélega fyndni á ensku — sérkenni, sem gerði að verkum að ég mundi hann löngu eftir að ég hafði gleymt þjónustu hans í starfinu. Það er sjaldgæft að Hindúi leiki sér að enskum orðum. Nú var maðurinn svo breytt- ur að hann var nær óþekkjan- legur. Stéttarmerki, magi og mærðarlegt málfar, allt þetta var horfið. Fyrir framan mig var hálfvisin beinagrind, vefj- arhattarlaus, næstum nakin, með síðan hárflóka og innfall- in þorskaugu. Eg hefði ekki þekkt hann nema af hálfmána- löguðu öri á vinstri kinn — sem reyndar stafaði af óhappi, sem mér var að kenna. En þetta var tvímælalaust Gunga Dass, inn- fæddur maður, sem — og þar fyrir var ég þakklátur — talaði ensku, og gat að minnsta kosti sagt mér hverju það sætti, sem fyrir mig hafði komið um morg- uninn. Eg skipaði þessum vesaling að sýna mér hvernig ég gæti sloppið úr gýgnum. Hann hélt á nýreittri kráku og svaraði mér með því að ganga að sandþrepi, sem lá framan við holurnar, og tók þegjandi að kveikja þar eld. Þurrt sef, melgresi og fúasprek loga vel, og hann kveikti í þessu með venjulegum eldspýt- um. Þegar krákan var komin á teininn og yfir glóðina, byrjaði Gunga Dass formálalaust: ,,Það eru aðeins til tvær teg- undir manna, herra. Lifandi og dauðir. Þegar maður er dauður, þá er hann dauður, en þegar hann er lifandi, þá lifir hann.“ (Hann varð að gefa sig að krák- unni augnablik, svo að hún brynni ekki). „Ef maður deyr heima, og deyr ekki þegar á að fara að brenna hann, þá kemur hann hingað.“ Þá rann upp fyrir mér hvern- ig á þessu daunilla þorpi stóð, og allt sem ég hafði lesið eða vitað, afskræmislegt og hrylli- legt, bliknaði fyrir þessari staðreynd, sem hinn fyrrver- andi Brahmin skýrði frá. Þeg- ar ég kom fyrst til Bombay, fyrir sextán árum, þá hafði armenískur ferðalangur sagt mér það, að til væri í Indlandi staður, sem þeir Hindúar væru fluttir til og geymdir, sem væru svo ólánssamir að rísa úr dái eða rakna við eftir flog. Eg minnist þess, að ég hló hjartan- lega að þessu, sem mér þótti þá gaman að og líkast ferða- mannsýkjum. Þegar ég sat þarna á botni sandgildrunnar, kom upp í huga minn endur- minningin um Watsonhótelið, 65

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.