Úrval - 01.03.1960, Page 93
7 FJÖRBROTUM
ÚRVAL
izt að raun um að vitsmunaver-
ur þessa hnattar eru á stigi,
sem er vel þekkt í lífs-þróun-
inni. Dýrið, sem stjómast af ó-
sjálfráðum viðbrögðum, hefur
fengið nýjan kraft — orðið með-
vitandi um sig sjálft. Það hefur
öðlast hæfileikann til þess að
hugsa.. Fjórða stærðin — tím-
inn — er þekkt og notuð, og á
þann hátt, sem óæðri lífverur
geta ekki gert, og það er áform-
að að hegða sér á morgun á
grundvelli þess, sem hugsað
var í dag“.
„Undantekningarlaust eru
tvær leiðir færar fyrir verur á
þessu stigi. Á annan veginn mun
hinn þroskaði heili að lokum
sigrast á hinum blindu hvötum,
og líta á hvem einstakling
hinna ýmsu kynþátta sem bróð-
ur hinna allra. í samstarfi um
framtíð sína í þessu þroskaða
samræmi og — mér varð kyn-
lega við, en þama var orðið —
ást, þá munu þeir verða sem ó-
dauðlegir".
„Á hinn bóginn geta vits-
munir, eins og við höfum fund-
ið þá á þessari plánetu, orðið
til þess, að menn halda dýrs-
eðli sínu, skiptast í hópa, berj-
ast innbyrðis, hatast fyrir lítil-
fjörlegan mun á lit og skapn-
aði, og taka upp ýmiskonar trú,
sem kemur hinum afvegaleiddu,
brjáluðu ofstækismönnum til
þess að ráðast hver á annan í
nafni réttlætis síns eða kenn-
inga.
„Við sjáum að vitsmunaverur
þessa hnattar nálgast krossgöt-
ur. Sundraðir af því, sem þeir
kalla kynþætti, og ýmiskonar á-
trúnaði, em þeir í hættu. Við
höfum athugað þá, siði, sögu og
tungu, úr fjarlægð og án sam-
bands, þótt fáeinar villtar teg-
undir hafi séð okkur og geimfar
okkar. Til þess að halda þeim
í fjarlægð, höfum við gróður-
sett — —“
Hér tók við heiti og lýsing
morðjurtanna, og loks uppskrift
á efni, sem dræpi þær.
„Tilgangur okkar hér“, las
ég enn, „eins og annars staðar,
er að hindra þær mörgu teg-
undir, sem ekki geta losnað við
frumhvatir sínar, frá því að ber-
ast út um geiminn eins og pest.
„Við höfum ekki fundið neina
sönnun fyrir því, á hvorn veg-
inn þessir menn muni hallast.
Við þekkjum einstaklinga með-
al þeirra, sem eru á vegi skap-
andi og raunhæfrar vitundar.
Einn þeirra hét Lao T’se. Ann-
ar og síðar uppi nefndist Búdd-
ha, og nú er uppi mikill fræðari,
sem heitir Jesús“.
„Verði þessi skýrsla lesin af
góðviljuðum mönnum, þá skap-
ar það út af fyrir sig nokkra
von. Það er þess vegna, sem við
höfum skilið eitt skip okkar
eftir eins og nokkurs konar
safn. En þar sem við getum
ekki ákveðið okkur nú, þá mun-
um við koma hingað aftur —“.
Ég gat ekki ráðið útreikning-
ana, en skildi að þeir voru