Bókatíðindi - 01.12.2022, Qupperneq 28
KIL
Á eigin vegum
Kristín Steinsdóttir
Sigþrúður er ekkja og vinnur fyrir sér með blaðburði.
Hún er ein, fólkið hennar er horfið á braut, en djúpt
í sálinni búa draumar um annað líf, annað land.
Þessi vinsæla saga kom fyrst út 2006. Fyrir hana
fékk Kristín Steinsdóttir Fjöruverðlaunin og var
tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Nú hefur leikgerð sögunnar verið sett á svið.
136 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
RAF HLB
Ástarsaga
Steinunn Ásmundsdóttir
Franskur ljósmyndari og íslensk stúlka kolfalla
hvort fyrir öðru helgina sem Reagan og Gorbatsjev
funda í Höfða í Reykjavík haustið 1986. Saga um
ofsafengna ást, stórveldaslag, kjarnorkukvíða og
hvernig Reykjavíkurfundurinn breytti heiminum.
Eftir höfund Manneskjusögu. www.yrkir.is.
155 bls. / H 5:30 klst.
Yrkir hugverkaútgáfa
IB
Biluð ást
Sigurjón Magnússon
Nanna er látin – konan sem Jóhann
Máni elskaði. Það var biluð ást.
Hér segir frá harkalegum örlögum manns sem
hafði margt til brunns að bera, var gæddur góðum
gáfum, óvanalegu líkamlegu atgervi og hugdirfsku.
En ástina kunni hann ekki að varast. Mögnuð
bók eftir einn okkar fremsta höfund.
482 bls.
Ormstunga
KIL RAF HLB
Blinda
Ragnheiður Gestsdóttir
Þegar sjónin dofnar og myrkrið færist nær verður
eitt skýrt og augljóst. Glæpsins þarf að hefna. En
hvernig? Sólveig er ósköp venjuleg kona; tæplega
sextug ekkja, móðir og amma. Glæpur sem framinn
var fyrir mörgum árum hefur mótað líf hennar og
fjölskyldunnar, þótt enginn viti af honum nema
hún sjálf. Og hann. Sá sem þarf að deyja.
216 bls.
Björt bókaútgáfa - Bókabeitan
IB
Breytt ástand
Berglind Ósk
Frumlegar og áleitnar sögur Berglindar draga
upp djarfa mynd af íslenskum samtíma.
Þær ögra lesandanum og sýna að leiðin
frá kyrrlátu reykvísku úthverfi yfir í jaðar
samfélagsins er styttri en flesta grunar.
„Ein sterkasta frumraun sem ég hef komist í.“
– Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur.
158 bls.
Sögur útgáfa
Skáldverk
ÍSLENSK
KIL RAF
10 dagar
(í helvíti)
Magnús Lyngdal Magnússon
Miðaldra endurskoðandi vaknar upp við vondan
draum í fangaklefa á þriðjudagsmorgni. Hvernig lenti
hann þarna inni? Hvað gerði hann? Framdi hann glæp?
Drap hann kannski einhvern? Allt er í þoku.
Fyndin og áleitin saga um sjálfsskoðun og krísu.
148 bls.
Bjartur
IB
Aldrei nema vinnukona
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir
Þuríður Guðmundsdóttir er vinnukona í Skagafirði
og Húnavatnssýslum á síðari hluta 19. aldar.
Þegar hún er á fertugsaldri er fjöldi fólks að flytja
til Ameríku. Það verður til þess að hún ákveður
að slást í hópinn upp á von og óvon. Á leiðinni
gerist ýmislegt sem hana óraði ekki fyrir.
243 bls.
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir
RAF HLB
Andnauð
Jón Atli Jónasson
Lesari: Svandís Dóra Einarsdóttir, Vigdís Hrefna
Pálsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson
Árið 1990 leggur lögreglumaðurinn Kristján allt
undir til að komast til botns í röð kynferðisbrota.
Þrjátíu árum síðar finnst maður nær dauða en lífi
í íbúð í Hafnarfirði. Munir í íbúðinni flækja mál
lögreglukonunnar Láru. Við tekur æsispennandi
kapphlaup við tímann þar sem Lára getur ekki
treyst neinum, síst af öllu sjálfri sér.
H 7:41 klst.
Storytel
KIL RAF
Auðlesin
Adolf Smári Unnarsson
Bráðfyndin og beitt samfélagsádeila sem tekst á
við þær stóru siðferðis- og sjálfsmyndarspurningar
sem þúsaldarkynslóðin stendur frammi fyrir.
Eru góðverk einhvers virði ef ekki er hægt að
stæra sig af þeim á samfélagsmiðlum? Og hvað
gerir „alvöru“ skáld þegar fé og frami bjóðast
fyrir að skrifa froðukennda metsölubók?
235 bls.
Forlagið - Mál og menning
Skáld verk
Íslensk
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa28
Skáldverk ÍSLENSK