Bókatíðindi - 01.12.2022, Síða 36
IB RAF HLB
Varnarlaus
Jónína Leósdóttir
Sálfræðingurinn Adam er rétt mættur í vinnuna
þegar barni er rænt úr afgreiðslunni. Skömmu síðar
platar fyrrverandi eiginkonan Soffía hann til að
taka að sér flókið og vafasamt mál fyrir lögregluna.
Varnarlaus er önnur sagan um Adam og Soffíu en
sú fyrsta, Launsátur, hlaut frábærar viðtökur.
337 bls.
Forlagið - Mál og menning
RAF HLB
Við erum bara að reyna að hafa gaman
Halldór Armand Ásgeirsson
Lesari: Halldór Armand Ásgeirsson
Hvers vegna er Doritos þjóðarsnakk Íslendinga? Hvað
getum við lært um ást af kvikmyndinni Groundhog
Day? Af hverju eigum við að varast drauma okkar?
Og af hverju er svona erfitt að reyna að hafa gaman? Í
þessari bráðskemmtilegu bók reynir Halldór Armand
að svara þessum spurningum og fjölda annarra.
H 5:57 klst.
Storytel
KIL RAF
Vængjalaus
Árni Árnason
SSSól í Sjallanum, döggvott gras í íslenskri sumarnótt,
nætursund og allt sem hefði getað orðið ... Sumarið
er 1996. Baldur er rúmlega tvítugur, Auður ellefu
árum eldri. Af tilviljun liggja leiðir þeirra saman
norður á Akureyri, einn dag og eina nótt, og fundur
þeirra á eftir að hafa mikil áhrif á líf beggja.
212 bls.
Bjartur
RAF HLB
Yfirsjónir
Hlín Agnarsdóttir
Lesari: Orri Huginn Ágústsson, Þrúður
Vilhjálmsdóttir, Örn Árnason, Ævar Þór
Benediktsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir
Yfirsjónir er safn fimm samtengdra smásagna sem
hverfast um ofbeldi og afleiðingar þess. Sjónarhornið
er oft óvænt og frásögnin margslungin. Sérhver
saga er sjálfstætt verk. Sögurnar geta bæði verið
nístandi sorglegar og launfyndnar en allar eiga þær
það sammerkt að hitta lesandann í hjartastað.
H 3:18 klst.
Storytel
SVK
Tættir þættir
Þórarinn Eldjárn
Þrjátíu og sjö áður óbirtir þættir sem fara úr einu í
annað um hitt og þetta. Þar á meðal reynslusögur,
minningar, athuganir, viðhorf, áhorf, sagnir og
smælki. Auk þess nokkrar ferilskrár. Meðal efnis:
Nytjadraumar, Snorralaug í Helgadal, Nokkrar
Bessastaðasögur, Þrír Halldórar, Skakkur ansats,
Hirðskáldið, Hirðf íflið, Kristmann og Ursus.
184 bls.
Gullbringa ehf.
IB RAF
Usli
Gjálífi, þrætur og þras
Úlfar Þormóðsson
Ásmundur Gunnlaugsson fæddist 1789, lærði til
prests og fékk síðan brauð á Siglufirði. Hann var
drykkfelldur og átti í miklum erjum við sveitunga
sína – oftar en ekki vegna þess að hann þótti mikill
kvennaljómi og notfærði sér það. Hann missti embætti,
hrökklaðist yfir í Skagafjörð, hélt þar uppteknum
hætti og átti margbreytilegt líf og kostulegt.
221 bls.
Veröld
KIL RAF
Úti
Ragnar Jónasson
Kiljuútgáfa af þessari vinsælu bók. Óveðursnótt í
nóvember. Fjórir vinir leita skjóls í litlum veiðikofa
uppi á heiði. Margt er þó hættulegra en stórhríð
um vetur. Og ekki munu allir komast lífs af.
261 bls.
Veröld
IB RAF
Útsýni
Guðrún Eva Mínervudóttir
Sigurlilja er ung kona „sem passar ekki inn í normið“,
eins og móðir hennar segir, og gædd óvenjulegri gáfu
sem einfaldar ekki líf hennar. Þegar Teresa frænka
hennar á Bakkafirði deyr kemur í hennar hlut að fara
þangað norður og ganga frá dánarbúinu. Þá kemur
í ljós að allir hafa eitthvað að fela – og sýna.
368 bls.
Bjartur
Verslaðu heima!
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa36
Skáldverk ÍSLENSK