Bókatíðindi - 01.12.2022, Qupperneq 37
SVK
Þræðir í lífi Bertu
Elínborg Angantýsdóttir
Kona freistar þess að vinna sig út úr sálarháska
með því að skrásetja lífssögu sína í samhengi við
sögu stórfjölskyldu sinnar og sveitunga.
Áratugirnir sem þessi látlausa og fagra frásögn
spannar gefa lesendum tilfinningu fyrir óstöðvandi
framgangi tímans og þeirri fléttu sársauka og gleði,
ógna og sigra sem hverfult mannslíf er.
287 bls.
Elínborg Angantýsdóttir
KIL
Smásögur
Þær líta aldrei undan
Nunca apartan la mirada
Kristinn R. Ólafsson
Smásagnasafn eftir fréttaritarann og leiðsögumanninn
Kristin R. Ólafsson. Sögurnar spanna allt frá
glæpum og harmgáska til hins dularfulla, ef
ekki dulúðlega, þar sem fyrir kemur morðingi
í Garðabæ, sveimhuga Bóluhjálmar og konur
sem líta aldrei undan. Ritað á mergjaðri íslensku
Eyjamannsins. Tvímála bók, ísl. og spænsk.
421 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK
Þöglu myndirnar / Pensilskrift
Smáprósar I og II
Gyrðir Elíasson
Í sagnaveröld Gyrðis Elíassonar getur allt gerst. Í
þessu tímamótaverki sem geymir 377 smáprósa
rúmast ógrynni af persónum, sögum, þankabrotum,
atburðum og hvers kyns spunaþráðum. Áföll og
eftirsjá, fyrirboðar og feigð, ógn og eftirvænting, ást
og andstæður. Tveggja binda lestrarupplifun sem
hægt er að gleyma sér við í tíma og ótíma.
538 bls.
Dimma
KIL
Öxin og jörðin
Ólafur Gunnarsson
Með aftöku Jóns Arasonar og sona hans hvarf
öll mótspyrna gegn hinum nýja lúterska sið og
danska konungsvaldinu á Íslandi. Öxin og jörðin
er söguleg skáldsaga um trú og efa, sjálfstæði
og kúgun þar sem fjöldi einstaklingur stíga
ljóslifandi fram úr þoku fortíðar. Bókin hlaut
Íslensku bókmenntaverðlaunin 2003.
366 bls.
Forlagið
KIL
Yrði það ekki dásamlegt ...
Anna Lísa Björnsdóttir
Rithöfundurinn Saga Hugadóttir kannar uppruna
meintra kraftaverkalækninga á afskekktum
sveitabæ. Nostalgía og notalegheit ásamt uppgjöri
við dauðann og gamla drauga varða leið að
uppgötvun sem hana óraði ekki fyrir.
„Spennusaga um hugann, fékk gæsahúð í 21
sek. við að lesa síðustu setninguna, mæli 100%
með henni!" - Matti Ósvald, atv.markþjálfi.
194 bls.
Anna Lísa Björnsdóttir
KIL RAF
Ýmislegt um risafurur og tímann
Jón Kalman Stefánsson
Sögumaður rifjar upp viðburðaríka sumardvöl í
Noregi þegar hann var 10 ára. Drengurinn lifir í
frjóum hugarheimi, draumar og persónulýsingar
einkennast af barnslega auðugu ímyndunarafli. Hann
leikur við vini sína og Tarzan og Léttfeta, enska
og þýska tindáta. Og Bítlarnir koma inn í líf hans.
Fjórða skáldsaga höfundar, frá árinu 2001.
216 bls.
Benedikt bókaútgáfa
KIL
Þagnarmúr
Arnaldur Indriðason
Í kjallara í Reykjavík finnast hrottaleg leyndarmál
múruð í vegg. Konráð er hættur í lögreglunni en
stöðugt með hugann við illvirki fortíðar og ákafi hans
vekur spurningar: Hvers vegna sagði hann ósatt um
atburði dagsins þegar faðir hans var myrtur? Hverju
hefur hann þagað yfir öll þessi ár? Átakanleg saga
um ofbeldi, varnarleysi og þungbæra þögn.
303 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
KIL
Þegar kóngur kom
Helgi Ingólfsson
Litrík og spennandi söguleg skáldsaga sem gerist
við fyrstu konungskomu til Íslands 1874. Ung stúlka
finnst myrt á komudegi konungs og barn hennar
er horfið. Rannsókn málsins verður að fara fram í
kyrrþey svo ekki hljótist hneykslan af. Við sögu kemur
fjöldi þjóðþekktra manna. Bókin hlaut Blóðdropann
– verðlaun Hins íslenska glæpafélags árið 2010.
390 bls.
Ugla
IB RAF HLB
Þetta rauða, það er ástin
Ragna Sigurðardóttir
Elsa ætlar að verða listamaður þótt fyrirmyndirnar
séu fáar um miðja 20. öld. En það krefst fórna.
Áhrifarík saga um unga konu sem berst fyrir því
að láta drauma sína rætast en ber eftir það sár sem
hún getur ekki rætt við nokkurn mann. Ragna
hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir bækur
sínar, nú síðast sagnasafnið Vetrargulrætur.
272 bls.
Forlagið - Mál og menning
www.boksala.is
Vertu ekki
bókalaus á jólanótt
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 37GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Skáldverk ÍSLENSK