Bókatíðindi - 01.12.2022, Side 44
KIL RAF
Líkamslistamaðurinn
Don DeLillo
Þýð: Jón P. Ásgeirsson
Líkamslistamaðurinn er ein sérstæðasta skáldsaga
bandaríska verðlaunahöfundarins Dons DeLillo.
Þar segir frá listakonunni Lauren sem tekst á
við djúpa sorg eftir að eiginmaður hennar styttir
sér aldur. Snilldarlega ofin skáldsaga um ástina,
tímann, minnið og þanþol tungumálsins.
160 bls.
Ugla
SVK KIL
Maðurinn sem dó tvisvar
Richard Osman
Þýð: Ingunn Snædal
Elizabeth fær bréf frá gömlum vinnufélaga. Hann
hefur gert hrikaleg mistök og þarf á hjálp að
halda. Í sögu hans koma við stolnir demantar,
ofbeldisfullur maf íósi og hann er í raunverulegri
lífshættu. Líkin byrja að hrannast upp og Elizabeth
fær þau Joyce, Ibrahim og Ron í lið með sér í
leit að hinum kaldrifjaða morðingja.
400 bls.
Drápa
KIL
Maríubæn í Bagdad
Sinan Antoon
Þýð: Karl Sigurbjörnsson
Maha og maður hennar flýja af heimili sínu í Bagdad
vegna trúabragðaátaka. Gamall frændi hennar,
Youssef, skýtur skjólshúsi yfir þau. Frásagnir Youssefs
um friðsælt líf og eðlileg samskipti trúarhópa í
Írak eru Möhu framandi. Einstaklega nærfærin
saga, skrifuð af listfengi, um kærleika, sársauka og
angist kristinnar fjölskyldu á óvissutímum.
232 bls.
Ugla
KIL RAF HLB
Minningar skriðdýrs
Silje O. Ulstein
Þýð: Dagur Gunnarsson
Á heitum ágústdegi hverfur ellefu ára stelpa
sporlaust í verslunarmiðstöð. Í framhaldinu þarf
móðir hennar líka að láta sig hverfa – til annars lífs
og annars tíma. Minningar skriðdýrs er grípandi
sálfræðitryllir en jafnframt áhrifamikil skáldsaga
um að finna sér stað í lífinu og að læra að elska.
Bók sem hefur vakið gríðarmikla athygli.
444 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
KIL RAF
Natríumklóríð
Jussi Adler-Olsen
Þýð: Jón St. Kristjánsson
Níunda bók Jussi Adler-Olsens um Deild Q í dönsku
lögreglunni en bókaflokkurinn um hana hefur notið
gríðarlegra vinsælda um allan heim undanfarin
ár. Hálfgerð tilviljun veldur því að gömul mál
sem höfðu verið flokkuð sem sjálfsvíg eða óhöpp
koma til rannsóknar að nýju og fyrr en varir byrjar
óhuggulegt mynstur að taka á sig mynd.
453 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
KIL
Þriðja bók – sjálfstætt framhald
Kyrkjari
Kim Faber og Janni Pedersen
Þýð: Ólafur Arnarson
Kyrkjari eftir Faber og Pedersen er þriðja
bókin í þrælspennandi ritröð um þau Juncker
og Signe sem starfa í ofbeldisglæpadeild
Kaupmannahafnarlögreglunnar. Bókin
er sjálfstætt framhald Meinsemdar og
Kölduslóðar sem komu út 2021.
464 bls.
Krummi bókaútgáfa
KIL RAF HLB
Lengsta nóttin
Ann Cleeves
Þýð: Þórdís Bachmann
Í þéttri snjókomu hugsar Vera Stanhope um það
eitt að komast sem fyrst heim. En hún villist af
leið og allt í einu blasir við henni yfirgefin bifreið
í vegkantinum. Í bílnum reynist vera ungbarn.
Vera tekur barnið með sér svo það frjósi ekki í hel
og ekur að gömlu setri. Þar liggur andvana kona í
snjónum. Gæti hún verið móðir barnsins?
416 bls.
Ugla
SVK
Leyndarmálið
Kathryn Hughes
Þýð: Ingunn Snædal
Frá höfundi metsölubókarinnar Bréfið kemur nú
Leyndarmálið, áhrifarík og spennandi saga sem ekki
er hægt að leggja frá sér. Mary á sér leyndarmál.
Fyrir fjörutíu árum tók hún ákvörðun sem breytti
lífi hennar um alla framtíð og olli straumhvörfum
hjá manneskju sem er henni mjög kær. Frá höfundi
Bréfsins, vinsælustu kilju landsins 2021.
336 bls.
Drápa
KIL RAF HLB
Liðin tíð
Lee Child
Þýð: Bjarni Gunnarsson
Jack Reacher er á leið til Kaliforníu þegar hann
kemur auga á skilti með nafninu Laconia – sem er
heimabær föður hans. En þegar hann fer að grafast
fyrir um fólkið sitt er fátt um svör. Á sama tíma er
ungt par á ferðalagi frá Kanada til New York. Þegar
bíllinn þeirra bilar finna þau mótel úti í auðninni
en þar er ekki allt eins og það á að vera.
432 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
KIL
Litháarnir við Laptevhaf
Dalia Grinkevičiūtė
Þýð: Geir Sigurðsson og Vilma Kinderytė
Ritstjóri: Rebekka Þráinsdóttir
Þann 14. júní 1941 var Dalia Grinkevičiūtė,
14 ára gömul, meðal þeirra þúsunda íbúa
Eystrasaltsríkjanna sem sovésk yfirvöld fluttu
nauðuga til Síberíu í þrælkunarvinnu. Bók þessi
hefur að geyma minningar hennar frá fyrstu árum
útlegðarinnar. Þær eru vitnisburður um þá hryllilegu
meðferð sem útlagarnir þurftu að sæta.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa44
Skáldverk ÞÝDD