Bókatíðindi - 01.12.2022, Qupperneq 45
KIL RAF
Nætursöngvarinn
Johanna Mo
Þýð: Pétur Már Ólafsson
Hanna Duncker snýr aftur á æskuslóðirnar á
eyjunni Öland – þar sem faðir hennar var dæmdur
fyrir morð. Og það var nýr yfirmaður hennar í
lögreglunni sem kom honum á bak við lás og slá
sextán árum fyrr. Mögnuð glæpasaga þar sem
leyndarmál voma yfir og samfélagið er langminnugt
– og minni þess er miskunnarlaust.
443 bls.
Bjartur
KIL HLB
Ríki óttans
Hillary Rodham Clinton og Louise Penny
Þýð: Friðrika Benónýsdóttir
Eftir stormasamt tímabil í bandarískum stjórnmálum
sest nýr forseti í Hvíta húsið. Nýi utanríkisráðherrann,
Ellen Adams, er varla tekin við embætti þegar hún
stendur frammi fyrir skelfilegri alþjóðlegri ógn.
Mögnuð pólitísk spennusaga eftir vinkonurnar
Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og metsöluhöfundinn Louise Penny.
525 bls.
Ugla
KIL
Ru
Kim Thúy
Þýð: Arndís Lóa Magnúsdóttir
Ru þýðir á frönsku lítill lækur, sömuleiðis
eitthvað sem rennur, á borð við tár eða blóð. Á
víetnömsku þýðir orðið vögguvísa eða sú sem
svæfir og huggar. Margverðlaunuð bók höfundar
sem flúði, líkt og 11 ára sögupersóna bókarinnar,
yfirséttarlíf sitt í Saigon á meðan Víetnamstríðið
geisaði í von um betra líf í Kanada.
– Bókaklúbburinn Sólin.
142 bls.
Benedikt bókaútgáfa
KIL HLB
Nágrannavarsla
Unni Lindell
Þýð: Snjólaug Bragadóttir
Hvaða hættur kunna að leynast í garði nágranna þíns?
Er einhver í húsinu við hliðina sem á að standa autt?
Sonja Jansen er ein heima að lesa undir
próf. Hún hefur tekið að sér að vökva fyrir
nágrannann í rólegu úthverfi. Hún verður vör
við umgang í húsinu og hringir í lögregluna.
Stuttu síðar hverfur hún sporlaust ...
410 bls.
Ugla
KIL RAF
Neðanjarðarjárnbrautin
Colson Whitehead
Þýð: Árni Óskarsson
Cora er þræll á bómullarökrunum í Georgíuríki.
Þrælafélagar hennar frá Afríku hafa útskúfað henni
og sem nýorðin fullþroska kona veit hún að hennar
bíða stærri og meiri raunir. Þegar Caesar, þræll sem
er nýkominn á plantekruna frá Virginíu, hvetur hana
til að flýja með sér í neðanjarðarjárnbrautina grípur
hún tækifærið. Margverðlaunað meistaraverk.
315 bls.
Bjartur
KIL RAF HLB
Nornadrengurinn
3. bókin um Noru Sand
Lone Theils
Þýð: Friðrika Benónýsdóttir
Lík finnst í kirkjugarði í London. Það er af nígerískum
prófessor sem hafði verið myrtur með dýrslegum
hætti. Skömmu áður hafði hann átt fund með
Noru Lind, dönskum fréttaritara í London. Nora er
sannfærð um að morðið tengist frægu skilnaðarmáli
danskrar raunveruleikastjörnu og rússnesks auðmanns
sem berjast um forræði yfir syni þeirra.
294 bls. / H 8:23 klst.
Ugla
KIL RAF
Norrlands Akvavit
Torgny Lindgren
Þýð: Heimir Pálsson
Á fimmta áratug 20. aldar varð mikil trúarvakning í
Vesturbotni í Svíþjóð. Þar lék trúboðspresturinn Olof
stórt hlutverk. Hálfri öld síðar snýr hann aftur. En
þá er allt breytt í Vesturbotni – nema brennivínið,
Gammal Norrlands Akvavit. — Einstök skáldsaga
eftir sænska stílsnillinginn Torgny Lindgren.
260 bls.
Ugla
SVK
Nýtt land utan við gluggann minn
Theodor Kallifatides
Þýð: Hallur Páll Jónsson
Kallifatides yfirgaf Grikkland 1964, fluttist til
Svíþjóðar og heillaðist af nýju landi og tungumáli. Í
þessari einstöku bók fjallar hann um uppruna sinn
og stöðu eftir áratuga búsetu í nýja landinu og fléttar
saman á hrífandi hátt hugleiðingum um tungumál og
tilvist, minningar, ást og eigin ímynd, auk möguleika
sem felast í framandi menningarheimi.
141 bls.
Dimma Hó,hó,hó! Jólabóka-bókahól!
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 45GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Skáldverk ÞÝDD