Bókatíðindi - 01.12.2022, Síða 50
KIL
Helgarsögur
Gár og Gys
Hannes Örn Blandon
Þetta eru sögur í bundnu máli, þar á meðal kirkjusögur
(gaman og alvara), sögur úr Grundarþingum í Eyjafirði,
þjóðsögur og einkamálasögur, hlýjar og ljúfar.
156 bls.
Hannes Örn Blandon
SVK
Humm
Linda Vilhjálmsdóttir
Í þessari látlausu og fallegu ljóðabók vefur
Linda Vilhjálmsdóttir persónulega sögu sína og
bernskuminningar saman við reynslu formæðra sinna
svo að úr verður voldugur hljómur sem endurómar
í huga lesanda lengi eftir að lestrinum er lokið.
58 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Í morgunsárið
Rúnar Þorsteinsson
Aðeins lítið augnablik, / alda rís og kveður. Rúnar
Þorsteinsson fæddist á Stöðvarfirði árið 1956 og
settist að erlendis 25 ára gamall. Í langri útivist
hefur hin hefðbundna íslenska ljóðagerð viðhaldið
móðurmálinu og verið höfundi til dægrastyttingar.
Í morgunsárið er fyrsta bók höfundar.
106 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK
Ísland pólerað
Ewa Marcinek
Þýð: Helga Soffía Einarsdóttir
Ísland pólerað er safn örsagna og ljóða eftir Ewu
Marcinek, pólskan rithöfund sem búsett er í
Reykjavík. Með húmor og kaldhæðni að vopni lýsir
hún raunveruleika ungrar konu sem flytur til Íslands
til þess að hefja nýtt líf á nýju tungumáli. Bókin
hefur þegar hlotið frábærar viðtökur þar sem nýrri
rödd í íslenskum bókmenntum er fagnað.
168 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
SVK
Kona/Spendýr
Ragnheiður Lárusdóttir
Þriðja ljóðabók Ragnheiðar Lárusdóttur, en fyrri bækur
hennar, Glerflísakliður og 1900 og eitthvað, hlutu mikla
athygli og lof, og fyrir þá síðarnefndu fékk Ragnheiður
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.
60 bls.
Bjartur
KIL
Eldsbirta
Kristrún Guðmundsdóttir
Stuttu eftir að eldgosið við Fagradalsfjall hófst fékk
kona sinn dauðadóm. Hún var búsett á Reykjanesi
og nýtir síðustu mánuði lífsins til þess að fara að
gosinu, þegar heilsa leyfir. Konan upplifir alheim
í nýju ljósi og skynjar sterkt að örlög hennar eru
aðeins hlekkur í keðju örlaga frá örófi. Ljóðin
spretta upp, þankar hennar við ævilok.
39 bls.
Espólín forlag
KIL
Ég er nú bara kona
Embla Hakadóttir
Ástarleit er örðugt starf / þótt oft það bæti þroska.
/ Til að krækja í kóngsson þarf / að kyssa marga
froska. Fyrsta bók höfundar sem hefur verið hluti
af hagyrðingasamfélaginu um árabil. Eftir hana hafa
birst vísur og kvæði sem hafa vakið verðskuldaða
athygli, enda hefur hún næmt eyra fyrir brag og
ljóð hennar eru vel ort, frumleg og grípandi.
72 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Ég vil bæta mitt land
Ólafur F. Magnússon
Þriðja ljóðabók Ólafs F. Magnússonar læknis. Henni
fylgir geisladiskur með lögum hans og ljóðum sem er
fjórði geisladiskurinn sem Ólafur lætur frá sér fara.
62 bls.
Skrudda
KIL
Fárra orða ljóð
Pjetur Hafstein Lárusson
Góð hæka er sem dögg í grasi eða snjókorn á
nakinni trjágrein; hún kemur eitt andartak og
hverfur jafnharðan, en fer þó hvergi. Þetta kann að
hljóma mótsagnakennt, en ætti þó að vera augljóst
þeim sem ljóðum unna. Ljóðlist, eins og öll list, er
spurning um skynjun, ekki skilning. Sama gildir um
tönkur, þær koma og fara, en sitja þó um kyrrt.
80 bls.
Skrudda
SVK
Fingramál
Guðrún Hannesdóttir
Í níundu ljóðabók sinni leiðir Guðrún lesandann
„leikandi létt / burt frá landamærum þagnarinnar“
og með ósvikinni röddu birtir honum heiminn
„með nýju letri / nýju gliti“ jafnt í björtum tónum
sem myrkum, óþekktum sem kunnuglegum.
64 bls.
Partus
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa50
Ljóð og leikrit