Bókatíðindi - 01.12.2022, Síða 52
SVK
Plómur
Sunna Dís Másdóttir
Litsterkar ljóðmyndir sem snerta jafnt við
tilfinningum og skilningarvitum. Umfjöllunarefnið
eru nýjar kenndir sem ólga í brjóstinu og ekki má
tala um. Þetta er fyrsta ljóðabók höfundar sem
er ein Svikaskálda og hefur í félagi við þau meðal
annars skrifað skáldsöguna Olíu sem tilnefnd var
til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2021.
48 bls.
Forlagið - Mál og menning
SVK
Sjófuglinn
Egill Ólafsson
Egill Ólafsson situr við dánarbeð föður síns.
Upp í hugann koma minningar og svipmyndir
úr viðburðaríkri ævi. Ólafur Á. Egilsson
var lengi til sjós, kallaður Sjófuglinn, vann
margvíslega erfiðisvinnu á stríðsárunum og lá
ungur heilt ár berklaveikur á Landakoti ásamt
félögum sínum sem dóu einn af öðrum.
107 bls.
Bjartur
KIL
Skáld-Rósa
Heildarsafn kveðskapar
Rósa Guðmundsdóttir
Skáldskapur Rósu Guðmundsdóttur (1795–1855)
birtist hér í fyrsta sinn í heildstæðu safni sem Ragnar
Ingi Aðalsteinsson ritstýrði og bjó til prentunar.
Formála ritar Elísabet Jökulsdóttir skáld sem segir
þar m.a. „Skáld-Rósa er skáld því hún býr yfir
umbreytingarafli, skáldlegum þrótti og skáldlegri
sýn. ... hún veinar meðan hjartað springur.“
168 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK
Skepna í eigin skinni
Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir
Sterk og heillandi ljóðabók þar sem eftirminnilegar
náttúru- og borgarmyndir fanga athyglina en undir
niðri býr annar og sárari veruleiki. Hér er ort um
tímann og söguna, lífið og dauðann, í djúpum og
myndríkum ljóðum; andrúmsloftið er grípandi
og textinn blæbrigðaríkur og tær. Fyrsta ljóðabók
Hrafnhildar sem er þekkt fyrir leikrit sín.
63 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Skrifað í þangið
Sigurður Jón Ólafsson
Í þessari bók eru yrkisefni af margvíslegum toga.
Einn kafli er helgaður nánasta umhverfi höfundar,
101 í Reykjavík, annar höfðar til fólks á öllum aldri
með frjótt ímyndunarafl, sá þriðji er endurminningar,
fjórði er helgaður minningu Ástu Lilju, eiginkonu
höfundar, og sá síðasti, Trú, fjallar um tilvist
mannsins og tengsl hans við náttúruna.
66 bls.
Skrudda
SVK
Næturlýs
Sigurbjörg Friðriksdóttir
Næturlýs er þriðja ljóðabók Sigurbjargar Friðriksdóttur.
Ljóðin eru myrk og meitluð og draga lesandann inn
á svið þar sem öll skilningarvit eru virkjuð.
71 bls.
Skriða bókaútgáfa
SVK
Næturverk
Sjón
Næturverk eftir meistara Sjón er mögnuð og
marglaga, djúpskyggn og draumkennd ljóðabók,
þar sem innri sýn og ytri veruleiki mætast í
nóttinni. Auðugt myndmálið kveikir sterkar
kenndir og knýjandi hugsanir um mannskepnuna
og veröldina, myrkar goðsagnir og hversdagslegur
veruleiki kallast á og orðfærið er engu líkt.
78 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
SVK
Ljóðorð Eirorms
Óða óða, Vonarskjöldur, Úlfamjólk
Oddný Eir Ævarsdóttir
Ljóðorð Eirorms:
Ljóðorð Eirorms: Óða óða,
Vonarskjöldur og Úlfamjólk.
Þrjár ljóðabækur eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur
490 bls.
Eirormur ehf.
KIL
Ókyrrð
Leikrit
Brynja Hjálmsdóttir
Ókyrrð er gamanleikur um háska í háloftunum.
Leikritið gerist í flugvél á tímum heimsfaraldurs
og hverfist um fjórar persónur sem allar stefna í
ólíkar áttir. Það er ókyrrð í lofti í þessu ærslafulla
verki sem fjallar um þrána eftir jafnvægi og
óuppfylltar óskir um að hafa stjórn á eigin tilveru,
í heimi þar sem ekkert lætur að stjórn.
110 bls.
Una útgáfuhús
KIL
Ólgublóð / Restless Blood
Úrval ljóða ásamt enskum þýðingum Júlíans D‘Arcys
og Ástráðs Eysteinssonar.
Hannes Hafstein
Þýð: Júlían D'Arcy og Ástráður Eysteinsson
Ritstjóri: Birna Bjarnadóttir
Hannes Hafstein steig fram sem nýtt afl í íslenskum
skáldskap. Ljóð hans þóttu einkennast af krafti,
raunsæi og hispursleysi. Í þeim búa innri átök sem
settu einnig svip á feril hans sem stjórnmálamanns
og fyrsta ráðherra Íslands. Ljóðin endurspegla
ólgu tilfinningaverunnar andspænis náttúrunni,
samskiptum kynjanna og þjóðfélagi á tímamótum.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa52
Ljóð og leikrit