Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 60
IB
Hvað nú?
Myndasaga um menntun
Halldór Baldursson
Halldór Baldursson, einn snjallasti teiknari landsins
og þjóðkunnur fyrir skopmyndir sínar í Fréttablaðinu,
lauk meistaranámi í listkennslufræðum í vor.
Lokaritgerð hans er ein sú alskemmtilegasta því þar
fer Halldór í myndasöguformi yfir skólagöngu sína og
menntun og skoðar hvernig myndasagan getur nýst
við að koma þekkingu og fróðleik á framfæri.
80 bls.
Bjartur
SVK
Hvað veistu um tónlist?
Gauti Eiríksson
Spurningabók með fullt af flottum myndum af
tónlistarfólki. Tónlistin skipar stóran sess í lífi flestra.
Það er upplagt að spreyta sig á spurningunum í þessari
bók. Hér er bæði spurt um erlendu stórstirnin sem og
sumt af færasta tónlistarfólki landsins. Auk þess er sér
kafli um eftirlæti okkar Íslendinga - Eurovision.
74 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB
Hvenær kemur sá stóri?
Að spá fyrir um jarðskjálfta
Ragnar Stefánsson
Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur
hefur um áratuga skeið verið í fylkingarbrjósti
íslenskra jarð vísindamanna sem fengist hafa
við skjálftarannsóknir og vöktun. Í þessari bók
gerir hann grein fyrir þróun fræðigreinarinnar
og fer yfir jarðskjálftasögu Íslands allt frá
miðöldum og til síðustu ára.
220 bls.
Skrudda
SVK
Hvernig virkar fjármálakerfið?
Andrés Magnússon
Er það satt að lán sem þú færð hjá banka eru ekki
peningar sem hafa verið lagðir inn í bankann heldur
peningar sem bankinn býr til úr engu? Í þessari bók
er útskýrt hvernig þetta er hægt. Í Covid kreppunni
jukust skuldir landsmanna um mörg hundruð milljarða
um leið og lánasafn bankanna stækkaði. Gengur
bönkum best þegar skuldir almennings vaxa mest
240 bls.
Local Therapies
SVK
Í návígi við fólkið á jörðinni
Þórir Guðmundsson
Segir frá venjulegu fólki í óvenjulegum og stundum
ótrúlegum aðstæðum. Náttúruöfl, styrjaldir,
hversdagshetjur og illmenni eru meðal þess sem
fréttamaðurinn og hjálparstarfsmaðurinn Þórir fjallar
um á síðum bókarinnar. Fólkið sem Þórir kynnist
hefur ótrúlegan styrk þrátt fyrir hrikalegar aðstæður
og er staðráðið í að gera heiminn að betri stað.
208 bls.
Salka
IB
Hrafninn
Þjóðin - Sagan - Þjóðtrúin
Sigurður Ægisson
Saga hrafnsins með íslensku þjóðinni nær
samkvæmt rituðum heimildum allt aftur til 9.
aldar, þegar hann leiddi Flóka Vilgerðarson upp
að Íslandsströndum. Ýmislegt fréttist af þessum
blakka spekingi eftir það, löngum tengdist hann
myrkraöflunum og ekki var laust við að galdramenn
notuðu parta úr búki hans í kukli sínu.
424 bls.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Hraunholt í Hnappadal
Mannlíf og minningar
Reynir Ingibjartsson
Í þessari bók segir frá mannlífi og minningum
sem tengjast bænum Hraunholtum í Hnappadal.
Sögumaður er Reynir Ingibjartsson sem ólst þar upp
með móður sinni og afa. Ellefu ára gamall fór Reynir
að skrá í litlar vasabækur, flest það sem tengdist
búskapnum, mannlífinu og leikjum sem hann bjó til.
Fróðleg og skemmtileg bók um veröld sem var.
192 bls.
Nýhöfn
IB
Húðbókin
Lára G. Sigurðardóttir og Sólveig Eiríksdóttir
Myndir: Hildur Ársælsdóttir
Hér er að finna allt sem gott er að vita um húðina
og hvernig á að viðhalda heilbrigði hennar og ljóma.
Einnig er fjallað ýtarlega um hvaða áhrif lífsvenjur og
næring hafa á húðina. Í bókinni eru ýmsar æfingar fyrir
húðina, uppskriftir að girnilegum og hollum mat sem
nærir hana og einfaldar uppskriftir að húðvörum.
308 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Húsameistari í hálfa öld
Einar I. Erlendsson og verk hans
Björn G. Björnsson
Glæsileg samantekt um ævi og verk Einars I.
Erlendssonar arkitekts en fáir íslenskir arkitektar
hafa átt lengri og viðburðaríkari starfsævi. Enginn
skráði þá merku sögu á meðan Einars naut við en
sjálfur gaf hann sig lítt að því að ræða eða skrifa um
eigin störf. Nú hefur loks verið ráðin nokkur bót á
með þessu yfirlitsriti Björns G. Björnssonar.
323 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
SVK
Hvað ef?
Róm hefði ekki fallið, Hitler hefði unnið, Bítlarnir
hefðu aldrei verið til og fleiri sagnfræðilegar
vangaveltur
Valur Gunnarsson
Kafað í lykilatburði í sögunni og skoðað hvernig
þeir hefðu getað farið öðruvísi og hvað hefði þá
getað gerst í framhaldinu. Allt frá gullaldarárum
Rómarveldis til Þýskalands í fyrri og seinni
heimsstyrjöldunum, frá Íslandi á tímum víkinga
og útrásarvíkinga til fallvaltra Sovétríkjanna og frá
Bítlunum til forsetakosninga í Bandaríkjunum.
240 bls.
Salka
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa60
Fræði og bækur almenns efnis