Bókatíðindi - 01.12.2022, Síða 62
IB
Let’s talk about horses
Benedikt Líndal og Sigríður Ævarsdóttir
Þýð: Guðni Líndal Benediktsson
Í þessari fallega myndskreyttu bók, er talað um
hesta frá ýmsum sjónarhornum. Höfundar skrifa út
frá hjartanu um reynslu sína af hestum og lífi sínu
með þeim. Sagt er frá eftirminnilegum hestum og
inn í frásögnina er fléttað fræðslu, sögum, og því
nýjasta sem uppgötvað hefur verið um hesta. Bókin
er nú fáanleg á íslensku, ensku og þýsku.
256 bls.
Nýhöfn
SVK
Living in Iceland Foreigner Survival Guide
Practical tips and useful Icelandic phrases
Fjalldís Ghim og Hafþór Jóhannsson
Þessi fræðandi bók inniheldur frábærar ábendingar
fyrir innflytjendur og ferðamenn á Íslandi, meðal
annars hvernig á að sækja um störf á Íslandi,
hvernig á að eignast íslenska vini, hvaða lög
Íslendingar vilja syngja saman og margt fleira!
.Bókin er á ensku
189 bls.
Esja
IB
Líkið er fundið
Sagnatíningur af Jökuldag
Endurs: Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Í þessari bráðskemmtilegu bók, Líkið er fundið, er
ógrynni skemmtilegra sagna og vísna, enda eru
Jökuldælingar þekktir fyrir létta lund langt aftur í
ættir og leyfa nú öðrum að njóta þess með sér.
151 bls.
Bókaútgáfan Hólar
GOR
Loftstýringar - tilraunaútgáfa
Þýð: Rúnar Arason
Bókin fjallar um grundvallaratriði loftstýringa,
m.a. loftþjöppur, þrýstihylki, loka og tjakka. Enn
fremur er lýst grunnatriðum við uppsetningu
þrýstiloftskerfa og rekstrarformi þeirra ásamt
nauðsynlegum gögnum. Bókin er ætluð til kennslu
í framhaldsskólum en hentar auk þess til sjálfsnáms
og sem uppsláttarrit fyrir tæknifólk.
127 bls.
IÐNÚ útgáfa
KIL
Lúkíansþýðingar Sveinbjarnar Egilssonar
Lúkíanus frá Samosata
Þýð: Sveinbjörn Egilsson
Ritstjóri: Már Jónsson
Verk Lúkíans, sem uppi var á 2. öld, nutu lengi
mikilla vinsælda, ekki síst til kennslu í forngrísku,
meðal annars við Bessastaðaskóla á fyrstu áratugum
19. aldar. Hér birtast þau í óviðjafnanlegum
þýðingum Sveinbjarnar Egilssonar sem varðveittar
eru í handritum skólapilta. Már Jónsson bjó til
prentunar og skrifar ítarlegan inngang.
378 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins
Kommúnistaávarpið
Karl Marx og Friedrich Engels
Kommúnistaávarpið kom fyrst út á íslenzku árið
1924. Þessi þýðing var gerð 1949 og er nú birt með
ítarlegum skýringum, upprunalegum inngangi
Sverris Kristjánssonar sagnfræðings og nýjum eftir
Pál Björnsson. Fullyrt er að saga mannsins sé í raun
saga sífelldrar stéttabaráttu á milli kúgara og hinna
kúguðu, á milli arðræninga og hinna arðrændu.
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Kóreustríðið 1950–1953
Max Hastings
Þýð: Magnús Þór Hafsteinsson
Hinn 25. júní 1950 hófust ein blóðugustu
stríðsátök 20. aldar þegar kommúnistastjórnin í
Norður-Kórea réðst inn í Suður-Kóreu. Rauða-Kína
og Sovétríkin studdu Norður-Kóreu gegn
fjölþjóðlegu herliði lýðræðisþjóða sem barðist
undir fána Sameinuðu þjóðanna. Í þrjú ár rambaði
heimsbyggðin á barmi þriðju heimsstyrjaldar.
559 bls.
Ugla
IB
Landsnefndin fyrri. Den islandske
Landkommission 1770-1771, VI
Ritstjórar: Hrefna Róbertsdóttir og Jóhanna Þ.
Guðmundsdóttir
Skjöl Landsnefndarinnar fyrri gefa einstæða innsýn
í íslenskt samfélag um 1770, en nefndin ferðaðist
um Ísland og safnaði upplýsingum um land og þjóð.
Í sjötta og síðasta bindi eru birt ýmis vinnugögn
nefndarinnar þar sem hún tók fyrir efni eins og
torfskurð, kálgarða eða sauðfjárpestina og ólík svör
almennings, presta og embættismanna um þau.
895 bls.
Sögufélag, Þjóðskjalasafn Íslands og
Ríkisskjalasafn Danmerkur
KIL
Launstafir tímans
Úr hugskoti Heimis Steinssonar
Heimir Steinsson
Þessi bók geymir brot af höfundarverki Heimis
Steinssonar (1937–2000). Hér er að finna upphaf
sjálfsævisögu, skrif um æskustöðvar á Seyðisfirði,
ræður frá Skálholts-, Þingvalla- og útvarpsstjóraárum.
Allt er það fleygað með ljóðum. Höfundur var
prestur, skólameistari í Skálholti, fræðimaður,
háskólakennari, útvarpsstjóri og þjóðgarðsvörður.
344 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK
Leikandinn
Greinar um menntun ungra barna
Ritstjóri: Jóhanna Einarsdóttir
Bókin inniheldur 18 fræðigreinar sem hafa að
geyma niðurstöður rannsókna um menntun ungra
barna frá ýmsum sjónarhornum: réttindum og
sjónarmiðum barna eru gerð skil, starfsaðferðum
með þeim, mikilvægi leiks og samfellu í námi þeirra.
Sjónum er einnig beint að börnum með fjölbreyttan
tungumála- og menningarbakgrunn o.fl.
484 bls.
Háskólaútgáfan
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa62
Fræði og bækur almenns efnis