Bókatíðindi - 01.12.2022, Qupperneq 63
RAF
Milli mála – Tímarit um erlend tungumál og
menningu
Milli mála 2022
14 (2)
Ritstjórar: Þórhildur Oddsdóttir og Geir Þórarinn
Þórarinsson
Milli mála birtir ritrýndar fræðigreinar á sviði
erlendra tungumála, bókmennta, þýðinga, málvísinda
og menntunarfræði. Einnig er þar að finna stuttar
bókmenntaþýðingar. Tímaritið kom fyrst út árið
2009 og er í opnum aðgangi: millimala.hi.is
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan
RAF
Milli mála – Tímarit um erlend tungumál og
menningu
Milli mála 2022
Sérhefti: Nýjustu rannsóknir í annarsmálsfræðum
Ritstjórar: Birna Arnbjörnsdóttir, Geir Þórarinn
Þórarinsson og Þórhildur Oddsdóttir
Sérhefti Milli mála 2022 er helgað nýjustu
rannsóknum á sviði annarsmálsfræða og
inniheldur ritrýndar fræðigreinar um það efni.
Gestaritstjóri er Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor
í annarsmálsfræðum við Háskóla Íslands.
Allar greinar heftisins eru á íslensku.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan
IB
Myndir og minningar af Ströndum
Ritstjórar: Dagrún Ósk Jónsdóttir, Eiríkur
Valdimarsson og Jón Jónsson
Í bókinni er sagt frá lífinu á Ströndum frá ólíkum
sjónarhornum. Yfir 40 einstaklingar rifja upp
minningar í stuttum þáttum og velja ljósmynd til að
birta með. Hér er að finna skemmtilegar og fjölbreyttar
frásagnir Strandafólks sem bregður upp svipmyndum
frá síðustu öld. Daglegt líf, eftirminnilegar persónur
og einstakir viðburðir eru rifjaðir upp.
192 bls.
Sauðfjársetur á Ströndum
SVK
Ofsóttur
Bill Browder
Þýð: Herdís M. Hübner
Bill Browder snýr hér aftur í kjölfar metsölubókar
sinnar, Eftirlýstur, með aðra hörkuspennandi bók sem
lýsir því hvernig hann afhjúpaði viðleitni Pútíns til
að stela og þvætta hundruð milljarða Bandaríkjadala
frá Rússlandi – og að Pútín sé reiðubúinn að drepa
hvern þann sem stendur í vegi fyrir honum.
314 bls.
Almenna bókafélagið
KIL RAF
Lykilorð 2023
Orð Guðs fyrir hvern dag
Ýmsir höfundar
Í bókinni eru biblíuvers fyrir hvern dag ársins auk
ljóðaerindis eða fleygs orðs. Uppbygging hennar
og innihald bíður upp á fjölbreytta notkun fyrir
þá sem vilja leyfa innblásnum textum að vekja sig
til umhugsunar. Auk þess að vera gefin út á kilju
og rafbókarformi eru Lykilorð lesin í hljóðvarpi og
birtast að hluta til á helstu samfélagsmiðlum.
144 bls.
Lífsmótun
KIL
Makamissir
Guðfinna Eydal og Anna Ingólfsdóttir
Makamissir er ítarleg og vönduð bók sem veitir
innsýn í það sem gerist í lífi einstaklings þegar maki
hans deyr. Hún er byggð á reynslu höfunda af því
að missa maka, fræðiritum, vísindarannsóknum
og þekkingu sálfræðings úr meðferðarstarfi.
176 bls.
Háskólaútgáfan
RAF
Mannvirkjagerð
Ferli - öryggi - gæði
Eyþór Víðisson
Bókin er ætluð til kennslu í áföngum sem fjalla
um ferli framkvæmda, öryggi og gæðastjórnun
við mannvirkjagerð. Í fyrsta kafla er almenn
umfjöllun um byggingaframkvæmdir á Íslandi, lög,
reglur, hönnun og leyfismál o.fl. Annar hlutinn
fjallar um vinnuvernd á byggingartíma en þriðji
hlutinn snýst um gæðakerfi og áætlanagerð.
IÐNÚ útgáfa
KIL
Menn Pútíns
Hvernig KGB tók völdin í Rússlandi og bauð síðan
Vesturlöndum byrginn
Catherine Belton
Þýð: Elín Guðmundsdóttir
Þessi marglofaða bók geymir afhjúpandi frásögn
af endurreisn KGB, rússnesku leyniþjónustunnar,
valdatöku Pútíns og hvernig illa fengið rússneskt
fé hefur grafið undan Vesturlöndum. Höfundur
bókarinnar er fyrrverandi fréttaritari Financial
Times í Moskvu og rannsóknarblaðamaður.
664 bls.
Ugla
Erum með úrvalið
...sérvalið
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 63GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Fræði og bækur almenns efnis